Sýningaropnun í Dalatangavita
Listahátíð í Reykjavík 2009 stendur að óhefðbundinni listsýningu í fjórum vitum hringinn í kring um landið, einum í hverjum landsfjórðungi. Myndlistarmönnum var boðið að setja upp verk sín í vitunum, sem verða opnir ferðalöngum fram yfir verslunarmannahelgi. Um er að ræða Dalatangavita, Garðskagavita, Bjargtangavita og Kópaskersvita. Listamaðurinn Unnar Örn sýnir á Austurlandi og opnar sýning hans í Dalatangavita í dag.
Unnar Örn skoðar þær hefðir og venjur sem mótast hafa í skrásetningu fólks á umhverfi sínu. Hann þræðir stofnarnir og söfn og notar innviði þeirra í verk sem draga dám af uppröðun og flokkun raunveruleikans. Þegar hann setti upp sýninguna Coup d’Etat í Suðsuðvestur árið 2007 vann hann í samstarfi við minjasafn Reykjanesbæjar og skeytti saman á eftirminnilegan máta staðbundinni menningararfleið og táknmyndum nýfrjálshyggjunnar.
Unnar Örn er fæddur árið 1974 og nam myndlist í Malmö í Svíþjóð. Hann hefur undanfarin ár sýnt í Listasafni Íslands, Safni og Kling & Bang galleríi, auk þess að standa að útgáfu eigin bókverka og plakata. Frekari upplýsingar um Unnar Örn má finna á heimasíðu hans: www.unnarorn.net
Fólk er hvatt til að ferðast í sumar á milli vita, taka þátt í sérstökum menningarviðburði, heimsækja þessi forvitnilegu mannvirki og njóta einstakrar náttúrufegurðar. Aukinheldur teygir sýningin anga sína í hina ýmsa miðla og munu berast leiftur frá hverjum vita hér og hvar í allt sumar þar sem listamennirnir verða í sérstöku samstarfi við útvarp, sjónvarp, dagblöð og vefmiðla. Í Tjörninni í Reykjavík hefur verið komið fyrir fjórum baujum sem vísa til verkefnisins í heild auk þess sem það er kynnt á skjám í Kjarvalsstöðum.
Listahátíð í Reykjavík vinnur sýninguna í samstarfi með Siglingastofnun Íslands, vitavörðum í hverjum vita og menningarfulltrúum þeirra sveitafélaga sem um ræðir.
Með sýningarstjórn fara Markús Þór Andrésson og Dorothée Kirch.
Ljósmynd af Dalatangavita: Anke-Jens