„Þeir sem gátu hætt snemma gerðu það“
Austfirðingar hafa í dag notið óvenjulegrar veðursældar miðað við að enn er miður mars. Hitinn fór í yfir tuttugu stig á tveimur stöðum eystra.Hæst fór hitinn í 20,4 á Dalatanga og í 20,2 gráður í Neskaupstað á þriðja tímanum í dag. Það nær þó ekki mesta hita sem mælst hefur í marsmánuði, 20,5 stig á Kvískerjum í Öræfum 29. mars 2012.
„Veðrið er eins gott og fólk segir, það er ekki verið að ljúga neinu,“ segir Hrönn Grímsdóttir sem býr í Neskaupstað.
„Ég hætti upp úr klukkan tvö, fór heim og settist út á pall. Ég held að allir sem gátu hætt fyrr hafi gert það enda orðið mjög heitt á skrifstofunni. Við heyrum hér í nágrönnunum, það er allt að lifna við eins og gerist þegar sólin fer að skína.
Það eina sem vantar er ísvélin í sjoppunni. Hún er ekki komin í gang. Það er einn af vorboðunum þegar það gerist,“ segir Hrönn.
Eðlilega hefur hitinn aðeins lækkað síðdegis en mældist þó enn 16 gráður í Neskaupstað, á Seyðisfirði og Reyðarfirði klukkan 17:00, 17 gráður á Fáskrúðsfirði og 15 á Teigarhorni í Berufirði.
„Sólin er það lágt á lofti að hún fer að setjast en hún er þó enn þarna uppi og sendir okkur hita. Ég get enn verið á stuttbuxum og bol á pallinum.“
Starfsfólk Múlaþings slakar á að loknum starfsdegi á tröppum Valaskjálfar í dag.