Ungt tónlistarfólk með tónleika á Stöðvarfirði
Ungt tónlistarfólk verður í aðalhlutverk í á örtónlistarhátíðinni Stuðvarfjörður, sem haldinn verður í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði á morgun.Flest tónlistarfólkið er á vegum Post-dreifingar, sem er hópur sjálfstæðs listafólks. Hluti þeirra hefur verið í listamannadvöl í Sköpunarmiðstöðinni þessa vikuna.
Á morgun koma meðal annars fram k.óla og hljómsveit og Bjarni Daníel úr hljómsveitinni Skoffín, sem fengu tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna í ár. K.óla fékk tilnefningu í opnum flokki fyrir plötu ársins, Plastprinsessuna en Skoffín fyrir rokkplötu ársins og sem bjartasta vonin.
Að auki kemur Steinunn Sigþrúðardóttir fram á vegum Post-dreifingar. Eitt atriði frá Stöðvarfirði er á listanum, tvíeykið Blöndungur sem Jónatan Emil og Þórir skipa. Þeir flytja nýtt efni.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00.