Heldur ótrauð sínu striki með USS bar og bistró á Vopnafirði
Það engan bilbug að finna á Selju Janthong, rekstraraðila asíska veitingastaðarins USS á Vopnafirði, sem ætlar sér að halda staðnum opnum áfram eins og hægt verður út árið.
Hugsar um Ísland á hverjum degi
Hin þýska Heide Schubert er meðal þeirra Íslandsvina sem í áraraðir hafa heimsótt landið nærri árlega frá 1977. Hún á orðið fjölda sagna af ævintýralegum kynnum af landi sem hafa orðið henni innblástur við listsköpun.Níundi bekkur Nesskóla sýnir Kardemommubæinn
Níundi bekkur Nesskóla frumsýndi í gærkvöldi leikgerð sýna af Kardemommubænum. Hefð er að bekkurinn setji upp leikverk til að safna fyrir skólaferðalagi sínu. Leikverkið hefur verið aðlagað að stórum bekknum og má í því meðal annars finna fjóra ræningja.Námslöngun gæti kviknað á Kveikjudögum í Menntaskólanum á Egilsstöðum
Allir þeir sem enn eru í vafa um hvað þá langar að læra, gera og verða í framtíðinni gætu notið góðs af því að reka inn nefið í Menntaskólann á Egilsstöðum (ME) næstu dægrin. Frá og með morgundeginum fara þar fram svokallaðir Kveikjudagar þar sem fólk getur kynnt sér hin og þessi menntunartækifæri bæði innanlands og utan.
Orð gegn orði hjá Guðmundi R.
Tónlistarmaðurinn Guðmundur R. Gíslason í Neskaupstað sendi á föstudag frá sér nýtt lag sem hann kallar „Orð gegn orði.“ Hann vann lagið með Árna Bergmann, raftónlistarmanni frá Hornafirði sem í dag starfar í Danmörku.Góð byrjun á fjórða Austurland Freeride Festival
Nokkur fjöldi gesta hefur gert sig heimakominn á Eskifirði í tilefni af því að Austurland Freeride Festival 2024 hófst í dag en þetta er í fjórða skiptið sem hátíðin sú er haldin.
Austfirðingagigg í Hafnarfirði: Eigum mikið af tónlistarfólki
Hljómsveitir og tónlistarfólk sem á það sameiginlegt að hafa alist upp á Austurlandi koma fram á sérstökum tónleikum í Bæjarbíói í Hafnarfirði á laugardagskvöld. Skipuleggjandi tónleikanna segir gaman að sjá að alltaf komi nýtt tónlistarfólk frá svæðinu.Klikkað skáld með djassívafi í Egilsstaðakirkju í kvöld
Fyrsti mars er mikilvæg dagsetning. Ekki vegna þess að þann dag kom út fyrsta símaskrá Íslands eða vegna þess að þann dag 1989 var fyrsta skipti hægt að kaupa bjór í landinu. Öllu frekar af því að þann dag, í kvöld nánar tiltekið, fer fram allra fyrsti viðburður nýstofnaðs Listunnendafélags Austurlands.