Skátafélagið Héraðsbúar verður með kvöldvöku í skátarjóðrinu í Selskógi á sunnudag kl. 17. Skátastarfið verður kynnt, nýir skátar vígðir og eldri skátar vígðir upp í eldri flokka. Auk þess verður sungið og farið í leiki. Héraðsbúar verða með skemmtiatriði. Gestir eru hvattir til að koma með teppi til að sitja á. Unnt er að nálgast skráningarblað fyrir ný börn sem vilja taka þátt í skátastarfinu hjá Þórdísi skátaforingja á kvöldvökunni. Þeir sem vilja koma að skátastarfinu með krökkunum eru jafnframt beðnir um að láta skátaforingjann vita.
Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs 16.09. sl. var fjallað um atvinnumál á svæðinu og horfurnar á komandi mánuðum. Þórarinn Sveinsson atvinnufulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur undanfarnar vikur haft samband við marga forsvarsmenn atvinnufyrirtækja í sveitarfélaginu og kannað stöðuna.
Samkvæmt upplýsingum frá Veiðiþjónustunni Strengjum kemur sumarið ágætlega út í ám félagsins og langbest í Hrútu, þar sem 580 laxar eru komnir í land og aðeins þarf að veiða um 50 laxa í viðbót til að slá nýtt veiðimet. Veitt verður út mánuðinn í ám Strengja; Breiðdalsá, Jöklu, Minnivallalæk og Laxá í Nesjum.
Á morgun, föstudaginn 18. september, milli kl. 14 og 18, verður ný viðbygging Egilsstaðaskóla til sýnis fyrir íbúa sveitarfélagsins sem og aðra.Í haust var kennslurými nýrrar bygginar tekið í notkun, þ.e. almennar kennslustofur og sérgreinastofur. Stefnt er að því að sá hluti nýbyggingarinnar sem hýsir hverfismiðstöðina, með sal, mötuneyti og sérútbúnum stofum, verði tekinn í notkun haustið 2010. Á sama tíma er stefnt að því að búið verði að endurbæta eldri hluta skólabyggingarinnar.
Minningarsjóður (sjálfseignarstofnun) hefur verið stofnaður til minningar um Guðlaug Magna Óðinsson sem lést í bílslysi í Fáskrúðsfirði, þann 16. maí síðastliðinn, aðeins 17 ára gamall. Sjálfseignarstofnunin heitir Minningarsjóður Guðlaugs Magna Óðinssonar og starfar samkvæmt lögum nr. 19/1988.
Ísland var í 16. sæti listans yfir aflahæstu fiskveiðiþjóðir heims árið 2006 með heildarafla upp á 1,35 milljónir tonna. Kínverjar bera ægishjálm yfir aðrar fiskveiðiþjóðir hvað aflamagn varðar. Heildarafli þeirra árið 2006 var 17,4 milljónir tonna. Næstir á eftir þeim koma Perúmenn með 7 milljónir tonna.
Fulltrúar hestamannafélagsins Blæs óskuðu eftir fjárstuðningi til byggingar reiðskemmu í Norðfirði á fundi með bæjarráði Fjarðabyggðar nú í vikunni. Samkvæmt samningi milli Blæs og landbúnaðarráðuneytisins þarf að hefja byggingu reiðskemmunar í haust. Í bókun bæjarráðs segir að ráðið sé sammála um að leita allra leiða til þess að af byggingu reiðskemmunnar geti orðið.
Nýtt verksmiðjuhús HB Granda á Vopnafirði, sem hýsa mun fiskmjölsverksmiðju félagsins, er nú sem óðast að taka á sig mynd. Framkvæmdum miðar vel en starfsmenn Héðins hf. hófu að reisa stálgrind verksmiðjuhússins um síðustu mánaðamót. Áður var búið að steypa hús, sem hýsa mun stjórnstöð verksmiðjunnar, skrifstofur, rannsóknastofu og starfsmannarými.
Anna Marta Guðmundsdóttir, bóndi á Hesteyri í Mjóafirði, lést í fyrrinótt á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Hún hefði orðið áttræð 29. september næstkomandi.