Það var mikið um að vera á hafnarsvæðinu á Vopnafirði í síðustu viku því þá var skipað þar út tæplega 3.700 tonnum af sjávarafurðum á vegum HB Granda. Á vefsvæði fyrirtækisins segir að þrjú erlend flutningaskip hafi þá komið til hafnar og lestað frystar síldarafurðir, fiskmjöl og -lýsi. Þá voru Faxi RE og Ingunn AK í höfninni með síldarafla á sama tíma og flutningaskipin voru þar á ferðinni.
Framkvæmdum við nýja fiskmjölsverksmiðju HB Granda á Vopnafirði miðar
vel. Á vef HB Granda segir að þær séu á áætlun. Um helgina átti að
steypa verksmiðjugólfið en það tafðist fyrir helgi vegna veðurs. Fyrstu
bílarnir sem flytja strálgrindina í verksmiðjuhúsið komu til
Vopnafjarðar í lok vikunnar.
Um síðastliðna helgi fór fram hátíðin The British Birdwatching Fair eða Birdfair við Rutland Water í Northamptonskíri á Englandi. Hátíðin er þekkt sem nokkurs konar Glastonbury hátíð fuglaskoðara en fólk streymir að hvaðanæva úr heiminum til að taka þátt. Íslensku þátttakendurnir á sýningunni voru Birds.is á Djúpavogi, Gavia Travel, Isafold Travel, Vestfjarðaklasinn, Hótel Brimnes og Atvinnuþróunarfélag Norður-Þingeyjasýslu.
Fiskeldi HB Granda í Berufirði fékk nýverið 27 þúsund þorskseiði frá
Stofnfiski sem komið var fyrir í eldiskvíum í firðinum. Þetta var annar
seiðaskammturinn í sumar því í júní voru sett út 23 þúsund seiði. Tíu
þúsund þorskar voru fyrir í eldi þannig að um sextíu þúsund fiskar eru
alls í stöðinni. Fiskurinn sem er í eldiskvíunum verður væntanlega ekki
kominn í sláturstærð fyrr en í lok næsta árs, að því er fram kemur á
heimasíðu HB Granda.
Landsvirkjun greinir frá því á vef sínum www.lv.is að fyrirtækið hafi í hvívetna farið eftir þeim reglum sem gilda um stýringu á rennsli vatns um Jökulsá í Fljótsdal frá Hraunaveitu en sú stýring hefur áhrif á vatnsmagn í fossum í ánni. Tilefnið er frétt m.a. RÚV um að vatnsstýring í fossunum sé ekki sem skyldi.