Fjarðabyggð tapaði fyrsta leik
Fjarðabyggð tapaði 0-1 fyrir Aftureldingu í fyrstu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu á Norðfjarðarvelli á sunnudag.
Fjarðabyggð tapaði 0-1 fyrir Aftureldingu í fyrstu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu á Norðfjarðarvelli á sunnudag.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum 6. maí að heimila bæjarstjóra og Heilbrigðisstofnun Austurlands að nýta tvær af þeim fimm milljónum sem Fljótsdalshérað veitti til undirbúnings að uppbyggingu hjúkrunarrýma á Egilsstöðum, til að kosta starf verkefnisstjóra um samræmingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu. Áfram verður unnið að samningum við ríkið um byggingu hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum, að því er kemur fram í bókun bæjarstjórnar.
Ormsteiti er haldið ár hvert á Fljótsdalshéraði og nú er undirbúningur að hefjast á fullum krafti. Að þessu sinni ber hátíðina upp frá 14. – 23. ágúst næstkomandi. Borgarafundur verður haldinn um hátíðina í Valaskjálf, þriðjudaginn 12. maí og hefst fundurinn kl. 20.00.
Páll Baldursson, sveitarstjóri á Breiðdalsvík, skrifar grein á vef Breiðdalshrepps þar sem hann hvetur stjórnvöld til að hvika hvergi frá áformum sínum um að endurskoða kvótakerfið og stokka það upp. ,,Breiðdalsvík er gott dæmi um byggðalag sem hefur farið illa út úr núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Á Breiðdalsvík eru mikil verðmæti í landi til fullvinnslu á sjávarafurðum, þ.e. húsakostur, búnaður og mannafli, en engar aflaheimildir," skrifar Páll.
Bókun bæjarráðs Hornafjarðar um sjávarútvegsmál þann 8. maí 2009: Atvinnulíf Íslendinga gengur í gegnum mikla erfiðleika nú um stundir. Rekstrarumhverfi fyrirtækja í landinu er háð mikilli óvissu og þar er sjávarútvegurinn sannarlega engin undantekning. Óstöðugur gjaldmiðill, háir vextir, vanmáttugt bankakerfi og erfið skuldastaða gera öllum atvinnurekstri á Íslandi erfitt um vik. Auk þessara óvissuþátta verða fyrirtæki í sjávarútvegi að glíma við sveiflur í lífríki hafsins og ekki síst aðstæður á mörkuðum erlendis.
Ný ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttu forsætisráðherra tók við í dag. Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs var kynntur í dag. Í stjórnarsáttmálanum kemur meðal annars fram varðandi stjórnkerfisumbætur að fækka eigi ráðuneytum úr 12 í 9 í áföngum. Nýtt ráðuneyti sveitastjórna, samgöngu- og byggðaþróunar fær til viðbótar við fyrri verkefni aukið vægi varðandi eflingu sveitarstjórnarstigsins, sem tengist m.a. tilfærslu verkefna frá ríki til sveitarfélaga, auk stefnumótunar á sviði byggðaþróunar. Í kafla stjórnarsáttmálans sem nefndur er sóknarstefna til framtíðar segir meðal annars að ríkisstjórnin muni efna til víðtæks samráðs undir forystu forsætisráðuneytisins um sóknaráætlanir fyrir alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífsgæða til framtíðar.
Siggi Jensson, forsprakki Fjarðaportsins á Reyðarfirði, afhenti Björgunarsveitinni Brimrúnu á Eskifirði peningagjöf að upphæð 50.000 kr. í vikunni. Peningarnir eru ágóði af sölu muna úr Nytjamarkaðnum sem er í Fjarðaportinu.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.