Birna Jóna með tæplega 47 metra kast á NM í frjálsum

Birna Jóna Sverrisdóttir, frjálsíþróttakona frá Egilsstöðum, kastaði tæpa 47 metra á Norðurlandamóti U-20 ára sem haldið var í Kaupmannahöfn um síðustu helgi.

Birna Jóna náði kastinu í fjórðu umferð en það var 46,92 metrar. Hún kastaði 45,68 metra í fyrstu umferð og 45,95 í þeirri þriðju. Önnur köst hennar voru ógild.

Birna Jóna varð í áttunda sæti af átta keppendum. Á það ber þó að líta að hún var annar tveggja keppenda fædd árið 2007 en aðrar voru fæddar 2005 og 6. Sú sem vann var á elstra árinu og kastaði 60,18 metra.

Birna Jóna kastaði 4 kg sleggju á mótinu en hún kastar vanalega léttari sleggju, eða 3 kg. Hún er þó ekki óvön 4 kg sleggjunni og kastaði henni 49,08 metra á móti í lok júní. Slíkt kast hefði hækkað hana um tvö sæti.

Birna Jóna keppti með UÍA/Hetti þar til um síðustu áramót að hún skipti yfir í ÍR eftir að hafa flutt suður til að geta einbeitt sér betur að íþróttunum. Tíu íslenskir keppendur tóku þátt í mótinu.

Mynd: FRÍ/Hlín


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.