Daði Fannar íþróttamaður Hattar
Daði Fannar Sverisson, frjálsíþróttamaður, var í útnefndur íþróttamaður Hattar á þrettándagleði félagsins.
„Daði Fannar er efnilegur íþróttamaður sem stundar íþrótt sína af samviskusemi og dugnaði og sýnir fyrirmyndar framkomu jafnt í keppni sem og á æfingum. Hann er ávallt einbeittur og jákvæður og tekur sigrum jafnt sem ósigrum af yfirvegun,“ segir í rökstuðningi fyrir valinu.
Daði Fannar varð Íslands- og unglingalandsmótsmeistari í spjótkasti 14 ára drengja ásamt því að komast í úrvalshóp FRÍ í sleggjukasti. Einnig vann hann til fjögurra annarra verðlauna á Íslandsmeistaramótinu. Hann var einnig valinn frjálsíþróttamaður Hattar þriðja árið í röð.
Aðrar deildir félagsins verðlaunuðu einnig sína íþróttamenn á þrettándagleðinni.
Blakmaður: Oddný Freyja Jökulsdóttir
Fimleikamaður: Valdís Ellen Kristjánsdóttir
Frjálsíþróttamaður: Daði Fannar Sverrisson
Knattspyrnumaður: Stefán Eyjólfsson
Körfuboltamaður: Andrés Kristleifsson
Sundmaður: Trausti Dagbjartsson