Efna til freyðivínshlaups á Reyðarfirði
Freyðivínshlaup verður ræst við tjaldsvæðið á Reyðarfirði í dag. Aðstandendur hlaupsins segjast hafa efnt til eigin viðburðar þar sem þeir eigi erfitt með að sækja slíkan viðburð í Reykjavík. Engin tímataka er í hlaupinu heldur áhersla á að allir komist í mark á sínum forsendum.„Það hafa verið svona hlaup í Elliðaárdalnum undanfarin ár. Við ætluðum að vera með okkar á sama tíma og það, á morgun, en veðurspáin í dag var miklu betri þannig við kýldum á þetta,“ segir Hjördís Helga Seljan, einn aðstandenda hlaupsins.
„Við erum nokkrar vínkonur hér sem höfum áhuga á freyðivíni, hreyfingu og góðum félagsskap. Okkur langaði suður en komumst ekki þannig við skipulögðum okkar eigið,“ bætir hún við.
Hlaupið verður ræst frá tjaldsvæðinu klukkan 18:00 í dag en mæting er 17:30. Farin verður eftir göngustíg að Grænafelli og til baka, alls 5 km. Fagfólk stýrir upphitun til að fyrirbyggja meiðsli meðal þátttakenda. „Jú – þetta er alltof langt – en það fara þetta allir á sínum hraða, skiptast á að hlaupa og labba. Það verður engin tímataka heldur er hlaupið búið klukkan átta,“ útskýrir Hjördís.
Tuttugu ára aldurstakmark er í hlaupið og skuli allir þátttakendur mæta með 750 ml freyðivínsflösku. Þeim er síðan deilt út á drykkjarstöðvar sem eru á leiðinni. Þátttakendur þurfa að mæta með eigið drykkjarílát og verða einu verðlaunin í kvöld veitt fyrir frumlegasta ílátið.
Ekki skiptir máli hvort freyðivínið er óáfengt eða áfengt. Hjördís segir engu skipta þótt hið óáfenga sé líklega frammistöðubætandi í þessu tilfelli þar sem hlaupið snúist ekki um hver komi fyrstur í mark. „Þetta er fyrir þá sem eru kannski ekki miklir hlauparar en langar samt að vera með.“
Þátttakendur eru einnig hvattir til að mæta í sumarkjólum þótt leyfilegt sé að vera í hvaða klæðnaði sem er.