Lið Egilsstaðaskóla varð í sjöunda sætinu í úrslitum Skólahreysti sem
fram fóru í Laugardalshöll í gærkvöldi. Liðið hlaut 36 stig, hálfu stigi
meira en Grunnskólinn á Hellu sem kom næstur.
Tólf skólar kepptu til úrslita en lið Egilsstaðaskóla komst í úrslitin eftir að hafa unnið Austurlandsriðil. Lið Egilsstaðaskóla mynduðu: Stefán Bragi Birgisson, Erla Gunnlaugsdóttir, Jóhanna K. Sigurþórsdóttir og Hafsteinn Gunnlaugsson.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.