Erna Friðriksdóttir íþróttamaður UÍA
Erna Friðriksdóttir, 23ja ára skíðakona úr Skíðafélaginu Stafdal, hefur verið valin íþróttamaður Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands fyrir árið 2009. Erna fékk viðurkenningar fyrir titilinn afhentar í gær.
Erna varð á seinasta ári fyrst Íslendinga til að tryggja sér
þátttökurétt í alpagreinum á vetrarólympíuleikum fatlaðra, sem fram fóru í Vancouver í Kanada í mars. Erna hefur æft bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum en undanfarna fjóra vetur hefur hún æft í Winterpark í Colorado í Bandaríkjunum. Árangur hennar má að miklu leyti þakka þeim æfingum.
Erna fékk farandbikar frá UÍA, eignabikar, blómvönd frá Alcoa-Fjarðaáli og 100 þúsund króna styrk úr Spretti, styrktarsjóði UÍA og Alcoa-Fjarðaáls. Úr sjóðnum er úthlutað tvisvar á ári en næst verður úthlutað í byrjun maí.
„Árangur Ernu er mikil hvatning fyrir skíðafólk. Hann sýnir með vinnu og ákveðni er hægt að láta drauminn rætast,“ segir Elín Rán Björnsdóttir, formaður UÍA.