Fjórir á EM í fimleikum
Fjórir iðkendur úr Hetti voru með íslensku unglingalandsliðunum sem kepptu á Evrópumótinu í Lúxemborg um helgina.Andrés Ívar Hlynsson var í drengjalandsliðinu en þeir Ásgeir Máni Ragnarsson, Bjartur Blær Hjaltason og Þorvaldur Jón Andrésson í blönduðu liði.
Bæði liðin komust í úrslit keppninnar og bættu við sig fimm stigum frá forkeppninni, sem telst ágætis árangur. Þau enduðu bæði í fimmta sæti.
Blandaða liðið í keppni: Mynd: Fimleikasamband Íslands/Ingvar