Fótbolti: Níu leikir í röð án ósigurs hjá Hetti/Huginn
Lið Hattar/Hugins í annarri deild karla í knattspyrnu hefur nú leikið níu leiki í röð án ósigurs meðan lið Knattspyrnufélags Austfjarða er komið leiðinlega nærri fallsvæðinu.Höttur/Huginn vann um helgina Völsung á Húsavík, 0-1. Alberto Lopez skoraði markið á 31. mínútu. Liðið varð hins vegar fyrir áfalli í lokin þegar markvörðurinn Hjörvar Daði Arnarsson fékk rautt spjald fyrir að handleika boltann utan teigs.
Sæbjörn Guðlaugsson, sem fyrr í mánuðinum lék sinn 100. leik fyrir félagið, fór í markið síðustu mínútuna.
Höttur/Huginn hefur nú unnið fjóra leiki í röð og er kominn upp í 5. sæti með 27 stig. Það þýðir þó lítið annað en að liðið fer hvorki upp né niður úr deildinni að þessu inni.
Á sama tíma hefur KFA tapað síðustu fjórum leikjum og aðeins unnið einn af síðustu níu. Liðið tapaði um helgina fyrir Þrótti Reykjavík, 1-3, sem um leið tryggði sig upp um deild með Njarðvík. Abdul Karim jafnaði leikinn á 40. mínútu en Þróttur bætti við tveimur mörkum í seinni hálfleik.
Þegar þrjár umferðir eru eftir er KFA það lið sem er næst fyrir ofan falliðin tvö með 18 stig, fjórum frá Reyni Sandgerði. Þessi tvö lið mætast í síðustu umferðinni. Næst mætir KFA neðsta liðinu, Magna á Grenivík en það þarf að vinna alla sína leiki til að forðast fallið. Í millitíðinni kemur Víkingur Ólafsvík austur en því liði hefur heldur ekki vegnað vel í sumar.
Lið Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis í Lengjudeild kvenna gerði 2-2 jafntefli við Hauka um helgina. Linli Tu kom FHL yfir á 21. mínútu en heimaliðið jafnaði strax mínútu síðar. Bayleigh Chaviers kom Austfjarðaliðinu aftur yfir á 65. mínútu en Hafnfirðingar jöfnuðu aftur á 82. mínútu.
Þegar tvær umferðir eru eftir er nokkuð ljóst að liðið endar í fimmta sæti, sem er ágætur árangur miðað við að vera nýtt í deildinni.
Lið Einherja í annarri deild kvenna vann Hamar 2-0 á Vopnafirði. Conio Ion skoraði mörkin, sitt í hvorum hálfleik. Deildinni hefur nú verið skipt í tvennt þar sem neðstu fimm liðin annars vegar, efstu sex hins vegar spila sín á milli um endanlega röð. Einherji er í neðri hlutanum, í öðru sæti enn sem komið er, en liðin taka með sér stig þau stig sem þau náðu fyrr í sumar.