Frækinn sigur Þróttar
Kvennalið Þróttar vann í fyrrakvöld 3-2 sigur á HK í stórkostlegum leik í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í blaki í Neskaupstað. HK-ingar eru ríkjandi Íslands-, deildar- og bikarmeistarar.
Leikurinn stóð í rúmar tvær klukkustundir og áhorfendur voru um tvö hundruð talsins.
Þróttur vann fyrstu hrinuna 25-17 en HK þá næstu 18-25. Þróttur leiddi lengst af í þriðju hrinu en HK jafnaði 23-23. Heimastúlkur sigu fram úr í lokin og unnu 26-24.
Kópavogsstúlkur snéru á móti fjórðu hrinunni sér í vil og vann 23-25. Í oddahrinunni var staðan jöfn, 9-9 en þá sigu Norðfirðingar fram úr á ný og unnu 15-11.
Þróttur tekur á móti Fylki um helgina. Leikið verður í kvöld klukkan 19:30 og á morgun klukkan 14:00.