Góður árangur fimleikafólks á fyrsta móti vetrarins
Fimleikadeild Hattar fór á fyrsta mót vetrarins í 1. deild fimleikasambands Íslands um síðustu helgi, þetta var haustmót FSÍ sem haldið var á Selfossi og voru skráðir til leiks 640 keppendur.
Þrjátíu og þrír krakkar fóru til keppni í Landsreglum á aldrinum 10- 19 ára og var keppt í þremur flokkum. Allir flokkar voru mjög fjölmennir og var hörð keppni í öllum flokkum.
Í 5. flokki (9-12 ára) fengu keppendur brons fyrir samanlagðan árangur en þetta er í fyrsta skipti sem fimleikadeild Hattar hlýtur verðlaun í þessum flokki.
Í 4. flokki (12-15 ára) voru keppendur með hæstu einkunn á trampólíni allra liða og enduðu í 7 sæti fyrir samanlagðan árangur.
Í 3. flokki (15 ára og eldri) fengu keppendur gull fyrir samanlagðan árangur.