Körfubolti: Hetti skellt á Álftanesi
Höttur tapaði illa, 105-77, fyrir Álftanesi í fyrstu deild karla þegar liðin mættust á föstudagskvöld. Álftnesingar opnuðu toppbaráttuna með sigrinum og komust upp fyrir Hött, að minnsta kosti um stundarsakir.Álftanes var einu stigi yfir, 26-25, eftir fyrsta leikhluta en upp úr miðjum öðrum fjórðungi fór að draga í sundur með liðunum. Álftanes skoraði sex stig í röð sem breyttu stöðunni úr 41-38 í 47-38 og leiddi 54-44 í hálfleik.
Eftir að liðin höfðu skorað sitt körfuna hvort á upphafsmínútu seinni hálfleiks, þannig að staðan varð 56-47, fór allt í baklás hjá Hetti. Þremur mínútum síðar var Álftanes komið með meira en 20 stiga skorskot, skorað 12 stig í röð og komið í 68-47.
Þótt sóknarleikur Hattar skánaði gerði vörnin það ekki þannig að eftir leikhlutann var Álftanes 87-55 yfir. Heimaliðið skoraði því 32 stig í einum fjórðungi, sem er afar mikið. Þar með voru úrslitin í raun ráðin.
Tim Guers var stigahæstur í liði Hattar með 19. Þrír fyrrum leikmenn Hattar voru í liðið Álftaness. Af þeim reyndist Eysteinn Bjarni Ævarsson sérlega skæður, skoraði 19 stig, hirti 11 fráköst, átti 8 stoðsendingar og varð efstur á vellinum í framlagsstigum, 31 talsins.
Nokkuð var liðið frá síðasta leik Hattar, en leik liðsins gegn Skallagrími fyrir tveimur vikum var frestað þegar tveir leikmenn Hattar greindust með Covid-smit. Sá leikur verður leikinn milli jóla og nýárs. Höttur mætir annars Fjölni á heimavelli í kvöld og Hamri á föstudagskvöld.
Úrslit helgarinnar og bið Hattar milli leikja hefur breytt stöðunni í deildinni nokkuð. Framan af tímabili fylgdust Höttur og Haukar að á toppnum. Nú hafa liðin bæði tapað tveimur leikjum. Haukar eru hins vegar efstir í deildinni með 20 stig úr 12 leikjum. Höttur er í þriðja sæti, með 16 stig úr 10 leikjum.
Þar á milli er Álftanes með 18 stig úr 12 leikjum. Á eftir Hetti fylgja Sindri og Selfoss, bæði með 14 stig úr 12 leikjum en síðan gestir kvöldgestirnir í Fjölni með 12 stig úr 11 leikjum. Efsta lið deildarinnar fer beint upp um deild en næstu fjögur spila úrslitakeppni um annað úrvalsdeildarsæti.