Valdís Kapitola valin blakkona ársins
Valdís Kapitola Þorvarðardóttir úr Neskaupstað hefur verið blakkona ársins af Blaksambandi Íslands.Valdís, sem er 22ja ára gömul, ólst upp hjá Þrótti í Neskaupstað en gekk til liðs við KA á Akureyri árið 2019. Með liðinu vann hún alla þrjá titla sem í boði voru hérlendis síðasta vetur.
Hún var kosin maður leiksins í úrslitum bikarkeppninnar og besti frelsingi úrvalsdeildarinnar síðasta vetur vor.
Hún spilaði sex leiki með A-landsliðinu í undankeppni Evrópumótsins í haust og lék þar stórt hlutverk í móttöku og varnarlínu liðsins. Í tilkynningu Blaksambandsins segir enn fremur að Valdís sé til fyrirmyndar, innan vallar sem utan.
Valdís í leik með Þrótti vorið 2018.