Óttar Steinn Magnússon, fyrirliði Hattar í knattspyrnu, segir liðið hafa
sett sér það markmið að fara upp úr annarri deildinni fyrir tímabilið.
Sumarið byrjar vel hjá liðinu sem vann Fjarðabyggð á Eskifjarðarvelli í
gærkvöldi.
Lið Hattar er eitt í efsta sæti annarrar deildar karla í knattspyrnu
eftir sigur á Völsungi á heimavelli í dag. Fjarðabyggð fylgir í humátt á
eftir en talaði illa fyrir Fjallabyggð.
Andrés Kristleifsson og Eysteinn Bjarni Ævarsson, körfuknattleiksmenn úr 10. flokki Hattar, léku með íslenska U-16 ára landsliðinu til úrslita um Norðurlandameistaratitilinn um helgina.
Höttur vann í kvöld Fjarðabyggð á Eskifjarðarvelli 0-1 í toppslag annarrar deildar karla í knattspyrnu. Högni Helgason, sem áður lék með Fjarðabyggð, skoraði markið.
Blakdeild Þróttar í Neskaupstað kynnti í dag Matthías Haraldsson til
sögunnar sem nýjan þjálfara meistaraflokks kvenna. Fjórir lykilmenn eru á
förum frá liðinu sem vann alla titlana í vetur auk þjálfarans.
Kajakklúbburinn Kaj stendur fyrir sínu árlega sjókajakmóti sem kennt er við Egil Rauða um hvítasunnuhelgina. Í boði á mótinum, sem er bæði fyrir byrjendur sem lengra komna, verða ýmis kajaknámskeið, æfingar í sjó og sundlaug, róðrarferðir, fyrirlestrar, sprettróður, veltukeppni og reipafimi.
Þrymsbikarinn var afhentur í fyrsta sinn á félags- og úrtökumóti
Hestamannafélagsins Blæs á Kirkjubólseyrum á laugardag. Stefán Sveinsson
frá Útnyrðingsstöðum vann bæði A-flokk og B-flokk gæðinga.
Hundruðir kvenna um allt Austurland tóku þátt í kvennahlaupinu sem fram fór á laugardag. Sólin skein á hlýjasta degi sumarsins, eiginlega þeim eina til þessa en mörgum þykir þægilegra að hlaupa í svalara loftslagi.
Höttur og Samkaup undirrituðu nýverið samstarfssamning sem gerir það að verkum að Samkaup verður einn af aðalstyrktaraðilum barna- og unglingastarfs Hattar.