Höttur og Fjarðabyggð standa sameiginlega fyrir uppboði á Tottenham-treyju sem árituð er af íslenska landsliðsmanninum Gylfa Sigurðssyni í fjáröflunarskyni fyrir sjötta flokk drengja.
Búið er að ákveða að fresta Ístölti Freyfaxa og Ávaxtamóti UÍA í frjálsíþróttum sem halda átti á morgun vegna slæms veðurútlits. Beðið er með ákvörðun um leiki Þróttar og HK í blaki.
Birkir Pálsson, fyrrum þjálfari og fyrirliði knattspyrnuliðs Hattar, er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt, Huginn Seyðisfirði. Þá er staðfest að fyrirliðinn Rúnar Freyr Þórhallsson verður áfram hjá Huginn í sumar. Leiknir Fáskrúðsfirði hefur fengið til sín tvo spænska leikmenn.
Tveir drengir frá Hetti voru nýverið valdir í úrvalshópa Fimleikasambands Íslands fyrir Evrópumótið í hópfimleikum sem haldið verður í haust. Flokkum félagsins hefur gengið ágætlega í Íslandsmótinu að undanförnu. Körfuknattleikslið Hattar vann leik sinn um helgina.
Karlalið Aftureldingar í blaki á yfir höfði sér sektir eftir að hafa skrópað í báðum leikjum sínum gegn Þrótti í Neskaupstað í síðustu helgi. Kvennaliðið tapaði í toppslagnum fyrir Aftureldingu. Körfuknattleikslið Hattar vann öruggan sigur á ÍA.
Ólafía Svanbergsdóttir, ellefu ára stúlka úr Neskaupstað, vann til þrennra verðlauna á alþjóðlegu íþróttamóti fatlaðra í Malmö í Svíþjóð um síðustu helgi.
Þjálfari kvennaliðs Þróttar í blaki segir leikmenn liðsins hafa gert of mikið af mistökum í leikjum þess gegn HK um helgina. Liðin mættust tvívegis í Neskaupstað og unnu sinn leikinn hvort.
Kvennalið Þróttar heimsækir Aftureldingu í Mosfellsbæ í toppslag í Mikasa-deild kvenna í blaki á morgun. Karlalið Aftureldingar spilar tvo leiki í Neskaupstað og körfuknattleikslið Hattar tekur á móti Skagamönnum í kvöld.
Steingrímur Örn Þorsteinsson úr UÍA varð um helgina Íslandsmeistari í langstökki innanhúss í flokki 14 ára pilta. Fleiri keppendur sambandsins náðu góðum árangri á Meistaramóti Íslands. Hamar stöðvaði sigurgöngu körfuknattleiksliðs Hattar, Leiknir varð í þriðja sæti Kjarnafæðismótsins og Þróttur tapaði fyrir toppliði HK í úrvalsdeild karla í blaki.