Körfubolti: Naumt tap í fyrsta leik ársins
Hattarmenn máttu þola tap í fyrsta leik ársins í Subway-deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Höttur tók þá á móti Grindavík og eftir mikla baráttu undir lok leiksins máttu heimamenn sætta sig við sjö stiga tap, 71-78. Höttur situr í 8. sæti deildarinnar, síðasta sætinu sem gefur sæti í úrslitakeppninni, með 12 stig.
Körfubolti: Tvær síðustu körfur leiksins skutu Hetti í átta liða úrslit bikarsins
Karlalið Hattar er komið í átta liða úrslit bikarkeppninnar í körfuknattleik eftir 82-84 sigur á Hamri í Hveragerði í gær. Höttur marði sigur með að skora fjögur síðustu stig leiksins eftir að hafa verið yfir lungann úr leiknum.Körfubolti: Höttur kominn upp í úrslitakeppnissæti
Hattarmenn unnu í gær góðan útisigur á liði Þórs í Þorlákshöfn í Subway-deild karla í körfubolta. Í leikslok munaði þremur stigum á liðunum, 89-92 urðu lokatölur. Með sigrinum komst liðið upp í úrslitakeppnissæti.Blak: Þróttur hafði ekki við KA
Lið Þróttar í úrvalsdeild kvenna í blaki tapaði 0-3 fyrir KA í gærkvöldi á heimavelli í síðasta leik sínum í deildinni á þessu ári.Körfubolti: Slæmur kafli rétt fyrir leikhlé réði úrslitum gegn Tindastóli
16-1 kafli Tindastóls gegn Hetti réði úrslitum í leik liðanna í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á Sauðárkróki í gærkvöldi.Gat ekki réttlætt að horfa á handboltann í brakandi þurrki
Óhætt er að segja að fátt sameini Íslendinga meira en þegar íslensk landslið taka þátt í stórmótum í handbolta. Leikir karlalandsliðsins í handbolta hafa verið vinsælasta sjónvarpsefnið á Íslandi í fimm ár í röð. Þannig sýna tölur að meira en helmingur þjóðarinnar horfði á leik Íslands og Ungverjalands á heimsmeistaramóti karla í Svíþjóð í byrjun janúar á síðasta ári. Og nú er enn að hefjast stórmót þar sem Ísland er meðal þátttakenda.