Styðjum Njál Trausta með sjálfstæðisstefnuna í öndvegi

Sterkan reynslumikinn leiðtoga þarf til að leiða Sjálfstæðisflokkinn í víðfeðmu Norðausturkjördæmi. Viðkomandi þarf að búa yfir skýrri sýn, ná til sem flestra, heiðarleika og traust, góða ímynd og orðspor.

Framundan eru mikilvægar Alþingiskosningar. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að vinna traust kjósenda að nýju. Þar skiptir mestu erindi sjálfstæðisstefnunnar. Verja þarf frelsið sem reynst hefur uppbyggingu þjóðfélagsins farsælt. Samfélag frjálsra viðskipta en meiri festu í rekstrarumhverfi fyrirtækja. Við eigum að skapa fjölbreytt tækifæri blómlegs atvinnulífs sem ber trausta velferðarþjónustu, samfélags sáttar og umburðarlyndis. Við leggjum áherslu á jafnræði. Við viljum stjórnmál byggðafestu.

Sem fyrr eru lausnirnar fólgnar í athafnafrelsi einstaklinga og grunngildum sjálfstæðisstefnunnar. Endurheimta þarf þá bjartsýni og uppbyggingarhug sem oft hefur einkennt samfélagið. Við eigum að hafna auknum ríkisafskiptum í landi tækifæra.

Njáll Trausti skyldi leiða lista Sjálfstæðismanna til sigurs í næstu þingkosningum. Reynsla hans úr atvinnulífi og starf innan sveitarstjórna er mikilvæg. Ötult starf hans á Alþingi frá árinu 2016 hefur verið Norðausturkjördæmi mikilvægt.

Störf Njáls Trausta einkennast af yfirvegun, réttsýni og reisn. Hann hefur verið mikilvægur fulltrúi okkar landsbyggðar.

Þegar Sjálfstæðismenn stilla upp sigurstranglegu sóknarliði Norðausturkjördæmis ættu þeir að kjósa áfram Njál Trausta Friðbertsson til forystu.

Höfundar eru fulltrúar á kjördæmisþingi Sjálfstæðisflokksins

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar