Erna Friðriksdóttir, skíðakona úr Fellabæ, kláraði báðar ferðarnar í
svigi kvenna á vetrarólympíuleikum fatlaðra sem fram fara í Vancouver í
Kanada. Erna er fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt í
alpagreinum á vetrarólympíuleikum fatlaðra.
Fjarðabyggð tapaði fyrir Þór frá Akureyri í fyrstu umferð
Lengjubikarsins um helgina 0-1. Mark Þórsara, sem voru sterkari aðilinn
í leiknum, kom skömmu fyrir leikslok. Leikurinn fór fram í
Fjarðabyggðarhöllinni.
Lið Egilsstaðaskóla vann Austurlandsriðil Skólahreysti sem fram fór í
íþróttahúsinu á Egilsstöðum í seinustu viku. Liðið náði 59 stigum og
tryggði sér þátttökurétt í úrslitunum í Laugardalshöll í lok apríl.
Karlalið Þróttar Neskaupstað er úr leik í bikarkeppninni í blaki.
Seinni forkeppni bikarkeppninnar fór fram á Akureyri um helgina þar sem
spilað var um tvö laus sæti í undanúrslitum keppninnar.
Bandaríkjamaðurinn Akeem Clark fór á kostum og skoraði 48 stig þegar
Höttur tryggði sér áframhaldandi þátttökurétt í 1. deild karla í
körfuknattleik með 98-106 sigri á ÍA á föstudagskvöld. Skagamenn eru á
móti fallnir.
Höttur vann Skallagrím en tapaði fyrir Ármanni í suðurferð sinni í 1.
deild karla í körfuknattleik um seinustu helgi. Liðið virðist nær
öruggt með að halda stöðu sinni í deildinni.
Höttur tekur á móti Haukum í kvöld í 1. deild karla í körfuknattleik.
Liðið batt enda á átta leikja taphrinu með því að leggja Hrunamenn í
suðurferð fyrir hálfum mánuði en tapaði fyrir Val í sömu ferð.