Silfur og brons austur í frjálsum íþróttum
Íþróttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 18. feb 2012 00:00 • Uppfært 08. jan 2016 19:22
Frjálsíþróttamaðurinn Örvar Þór Guðnason vann til tvennra verðlauna á
Íslandsmóti 15-22 innanhúss í frjálsum íþróttum nýverið. Tveir keppendur
frá UÍA tóku þátt í mótinu.
Örvar hafnaði í þriðja sæti í 200 m hlaupi og í 2. sæti í hástökk með stökki upp á 1,88 m, eftir spennandi keppni. Hinn UÍA keppandinn var Daði Fannar Sverrisson en hann hafnaði í 5. sæti í kúluvarpi og 6. sæti í 60 m grindahlaupi. Báðir æfa með Hetti.