Austurland þarf þingmann

Nú þegar dregur nær kosningum þá blasir raunveruleikinn við.
Hvað á ég að kjósa?
Hvernig á ég að ákveða mig?
Hvað er það sem skiptir máli?

Hér á Austurlandi erum við sárafá. Nú búa hér alls 10.820 manns, um 2,4% þjóðarinnar, sem þýðir að jafnaði, 0.7 íbúa á hvern ferkílómetra. Hér eigum við samt margar aflamestu löndunarhafnir landsins og samanlagt er um 40% af afla Íslendinga landað í austfirskum höfnum. Útflutningsverðmæti afurða Alcoa Fjarðaáls, á árinu 2020, nam 82,5 milljörðum íslenskra króna eða um 13% af útflutningsverðmætum landsins. Við leggjum vel til þjóðarbúsins en opinber þjónusta og innviðir hér kosta líka sitt og hér er til dæmis mikið vegakerfi sem enn þarf að bæta þó margt hafi áunnist. Verulegra framkvæmda er þörf og má þar nefna Fjarðarheiðargöng, Axarveg, Suðurfjarðaveg og nýja brú yfir Lagarfljót svo fátt eitt sé nefnt.

Af verkunum skulum við dæma þá

Framsóknarflokkurinn hefur sýnt það og sannað á kjörtímabilinu að flokkurinn er landsbyggðaflokkur með mikinn hug á umbótum í vegakerfinu. Við höfum einnig margsýnt það og sannað að við erum framkvæmdaflokkur, hjá okkur eru ekki innantóm loforð á hátíðum og tyllidögum. Ýmsu er lokið, margt er hafið og annað er búið að undirbúa sem bíður eftir að verða hrint í framkvæmd. En þá skiptir máli að fólkið, sem vill og getur, sé í stöðu til þess að klára málin.

Betri er einn fugl í hendi

Hér á Austurlandi þarf að horfa til þess hvaða flokkar það eru sem geta skilað öflugum Austfirðingum inn á þing. Það getur Framsóknarflokkurinn. Líneik Anna Sævarsdóttir skipar 2. sæti framboðslistans okkar. Hún hefur áralanga reynslu af þingstörfum, sveitarstjórnarmálum og innan úr opinbera geiranum en það sem ekki skiptir síður máli er að hún hefur áratuga reynslu af því að búa á Austurlandi og gerir það enn. Við vitum hvað Líneik hefur skipt Austfirðinga miklu máli, alla þá vinnu sem hún hefur innt af hendi fyrir okkur og hversu miklu máli skiptir að eiga hana að sem okkar fulltrúa á Alþingi. Það skiptir máli að geta tekið upp tólið, hringt í þingmanninn sinn og fengið að vita að málin verði skoðuð af yfirvegun og þekkingu sem byggir á persónulegri reynslu af umhverfi og aðstæðum.

Við þurfum rödd við borðið

Nú gefa skoðanakannanir það til kynna að Framsókn eigi upp á pallborðið hjá landsmönnum og íbúum Austurlands. Við fögnum því að eiga svo góða samleið með kjósendum og vonumst til að talning upp úr kjörkössum sýni það sannarlega. En hér verður að setja varnagla. Það er ekki hægt að stóla á að allir hinir muni kjósa það sem þér sjálfum líst nú ágætlega á. Ef þér líkar það sem við gerum, ef þú vilt sjá öflugan fulltrúa Austurlands á Alþingi og ef þú vilt að við séum í stöðu til að tala máli landsbyggðarinnar allrar og Austurlands sérstaklega, íbúanna, barnanna, vegakerfisins og alls hins, þá þarftu að setja X við B á kjördag.

Höfundur skipar 7. sætið á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.