Framkvæmt fyrir 21 milljarð á árinu

Líklegt er að byrjað verði að bora Norðfjarðargöng á næsta ári. Óvíst er hvenær hafist verður handa við Axarveg. Gefi borgarstjórinn í Reykjavík grænt ljós verður hugsanlega byrjað að byggja 3.500 fermetra samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli á þessu ári. Þróunarfélag Austurlands leiðir markaðsvinnu fyrir flugvellina á Egilsstöðum og Akureyri og innan 18 mánaða verða 1.800 bæir um land allt komnir með háhraðanetssamband. Þetta kemur fram í viðtali Austurgluggans við Kristján L. Möller, samgönguráðherra.

Árið 2008 var mesta framkvæmdaár Íslandssögunnar í samgöngumálum. Kristján L. Möller, ráðherra samgöngu- og byggðamála, segir að erfiðleikaárið 2009 verði þrátt fyrir allt næst mesta samgönguframkvæmdaár sögunnar. Í dag séu í gangi framkvæmdir fyrir um 15 milljarða króna. Boðin verði út verkefni fyrir um sex milljarða í ár og sum af þeim verkum teygist yfir á næsta ár. Framkvæmdaárið nú hljóði því upp á 21 milljarð króna.

  

Norðfjarðargöng

  

Meðal þeirra útboða sem eru hafin má nefna Vopnafjarðarheiðina. Hún er boðin út í heilu lagi og tilboð verða opnuð 24. mars. Kristján segir nokkurt vandamál að í því kreppuástandi sem ríkir sjái ekki enn til lands með fjárlög og áætlanir áranna 2010 til 2012. Það hefti getu manna til að sjá hversu mikið af verkum megi setja inn á þessi ár og hangi saman við vinnu ríkisstjórnarinnar að  samsetningu fjárlagaramma fyrir tímabilið og aðkomu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins þar að.  Þetta hafi til dæmis áhrif á fyrirhuguð Norðfjarðargöng.

Öllum rannsóknum varðandi göngin er nú lokið. Göngin verða á milli 7 og 8 km löng, en hver km kostar að jafnaði um milljarð króna. Kristján segir óhagkvæmt hafa verið að bjóða út gangnagerð undanfarið, en hann sé sannfærður um að kostnaður við hana lækki hratt þegar líður á árið vegna stýrivaxtalækkana, styrkingar krónunnar og verðubólgulækkunar.  Þegar einhverjar grunntölur liggi fyrir um fjárlög næstu ára verði hægt að segja til um hvenær göngin geti farið í forval og formlegt útboð á evrópska efnahagssvæðinu. Norðfjarðargöng verði þriggja ára verkefni og frá forvali að verkbyrjun líði um hálft ár. Kristján vonast til að unnt verði að byrja að bora árið 2010 og segist bjartsýnn á framgang verkefnisins. Norðfjarðargöng séu næstu göng á landsvísu og Oddsskarðsgöng barn síns tíma og sómi sér best sem jarðgangasafn.

Umhverfismat stendur yfir vegna Axarvegar. Kristján segir ekki óeðlilegt að deilt sé um Öxi og menn hafi sterkar skoðanir á því hvar vegir eigi að liggja og hvernig. Umhverfismatsferlinu var breytt á þann veg að bætt var við umhverfismati á vegaframkvæmdum í Berufirði og í Skriðdal. Öxi fór inn á samgönguáætlun við flýtiframkvæmdir ríkisstjórnarinnar frá 10. júlí 2007. Kostnaður liggur ekki fyrir því að í umhverfismati og hönnunarferli er ekki niðurnjörvað hvar nákvæmlega vegurinn á að liggja. Ekkert er hægt að segja um hvenær ráðist verður í framkvæmdina.

Ótaldar eru framkvæmdir í Skriðdal, sem koma til útboðs í ár. Þar eru þrjár nýjar brýr og um 12 km vegarkafli. Framkvæmdir við Hólmaháls milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar  og vegagerð í Hamarsfirði halda áfram og verið að ljúka framkvæmdum í Arnórsstaðamúlanum á Jökuldal. Borgarfjarðarvegur eystri er kominn með leyfi og fer í framkvæmd þegar vorar.

 

Samgöngumiðstöð

 

Fljótlega eftir bankahrun bað Kristján Möller Flugstoðir um að endurskoða áætlun um byggingu sex þúsund fermetra flugstöðvar norðan Loftleiðahótelsins og átti hún að kosta um þrjá til fjóra milljarða. Nú liggja fyrir teikningar af 3.500 fermetra flugstöð sem dugar miðað við flugumferð sem fyrsti áfangi. Hún er að sögn Kristjáns komin í viðráðanlegt verð eða rúman milljarð króna. ,,Ég hef átt fund með borgarstjóra og lagt fram tvo kosti. Annars vegar norðan við Loftleiðahótelið þar sem ný flugstöð átti að vera og hins vegar er hugmynd um að byggja þar sem Flugfélag Íslands er með flugstöðvarskúrinn núna. Kosturinn við það er að þá yrði byggt á okkar landi. Ég hef beðið borgarstjóra um að hraða þessari vinnu.  Þetta hefur tekið allt of langan tíma í borgarkerfinu og við fáum engin svör. Ef við fáum grænt ljós frá borgarstjórn fljótlega byrjum við að byggja á þessu ári. Ég lít á þetta sem atvinnuskapandi framkvæmd fyrir iðnaðarmenn á höfuðborgarsvæðinu og óskaði eftir að flugstöð yrði ekki hönnuð sem innflutt stálgrinda- og einingahús heldur byggð á staðnum með íslensku vinnuafli,“ segir Kristján.

Fjarskiptabylting

Kristján segist ákaflega hreykinn af samningum um háhraðanetstengingu við Símann fyrir skömmu. Margt hafi tafið en þegar upp er staðið sé það af hinu góða því nú liggi fyrir betri tæknilausnir og búnaður. ,,Þegar við buðum þetta út og opnuðum tilboð 3. september síðastliðinn var um að ræða tæplega 1200 bæi. Kostnaðaráætlun hljóðaði þá upp á 1,3 til 2,4 milljarða króna. Við fengum 379 milljóna króna tilboð frá Símanum, sem er frábært tilboð. Þar að auki hafa 600 bæir bæst við, vegna þess að aðilar sem ætluðu að þjóna ákveðnum svæðum á markaðslegum forsendum, sem þýddi þá að við máttum ekki fara inn á þau svæði, eru hættir við einhverra hluta vegna. Bæirnir eru því 1800 talsins og verkefnið í það heila upp á um einn milljarð.“ Vinna hefst á næstu vikum og verkið verður unnið á 18 mánuðum eða skemur. Hafist verður handa um framkvæmdirnar á Norðurlandi, Austurlandi og Vestfjörðum. ,,Menn munu fá háhraðanetstengingu og þjónustu eins og best gerist annars staðar og loks sitja þá allir Íslendingar við sama borð hvað þetta snertir og það gleður jafnaðarmannahjartað.“ Hvað gsm-samband út um land snertir segir Kristján eiga eftir að fínstilla saman ýmsa senda þegar fer að vora og þá náist vonandi að komast fyrir flesta skugga.

 

Flugvellir  

 

Samgönguráðuneytið er að koma á fót nefnd sem verður undir forræði Þróunarstofu Austurlands og verður hún skipuð fulltrúum ráðuneytisins, Flugstoða, Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi og Eyþings á Norðurlandi. Nefndin á að kanna hvað unnt er að gera til að markaðssetja betur flugvellina á Egilsstöðum og Akureyri, meðal annars með tilliti til millilanda- og fraktflugs. Vonast er eftir niðurstöðum á haustdögum. Kristján segir þetta jafnvel muni tengjast inn á vinnu að hugsanlegri sameiningu Keflavíkurflugvallar og Flugstoða og þá verði allir flugvellir reknir á einni hendi og tekjur þeirra og gjöld gegnum sama sjóð.

 

(Viðtalið birtist í Austurglugganumm 5. mars sl.)

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.