Geðheilbrigðismál og landsbyggðin

Því miður er það svo og hefur verið alla tíð – að geðsjúkdómar og meðhöndlun þeirra er ekki litin sömu augum og meðferð annarra meinsemda. Geðheilbrigðismál rata einkum í umræðuna þegar skelfileg áföll dynja á samfélaginu eins og gerst hefur ítrekað á þessu ári. Þá vakna stjórnmálamenn og tjá sig um nauðsyn breytinga. Það er jákvætt en þessi mál verða ekki löguð í átaksverkefnum. Það þarf að gera breytingar. Nýja forgangsröðun.

Landsbyggðin er og hefur alltaf verið í sérflokki þegar kemur að meðhöndlun geðsjúkdóma. Á þessu ári hafa komið upp sorgleg mál sem minna mann á hversu mikilvægt það er að auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. En það þurfti ekki einstök mál til að minna á þetta því opinber gögn á síðustu árum hafa gefið okkur tilefni til áhyggna.

Nýlegar tölur frá Landlæknisembættinu sýna t.d. að notkun þunglyndislyfja á Norður- og Austurlandi er töluvert yfir meðalnotkun á landinu. Notkunin raunar mest í þessum landshlutum. Það eru auðvitað ekki slæm tíðindi að fólk noti lyf og það er alltaf jákvætt þegar fólk leitar sér aðstoðar. Hins vegar er óhjákvæmilegt að draga þá ályktun að hugsanlega þurfi að stórefla aðgengi að öðrum stuðningsúrræðum því mikil neysla lyfja getur einfaldlega þýtt að það séu ekki önnur meðferðarúrræði í boði.

Og það gæti því miður verið tilfellið á Austurlandi. Landshlutinn er stór en ekki búa nema um ellefu þúsund manns í honum. Aukið framboð á fjölbreyttum úrræðum er því flókið viðfangsefni enda nær útilokað að setja uppbygginguna í hendur markaðsafla. Það er ekki tilviljun að á Austurlandi starfa ekki einkareknar sálfræðistofur. Það borgar sig bara ekki.

Þessi skortur á úrræðum getur seinkað allri meðferðarvinnu. Það getur verið löng bið eftir réttri greiningu og þegar kemur að andlegum veikindum getur þetta einfaldlega verið spurning um líf eða dauða í erfiðustu tilfellunum. Það er skelfilegt til þess að vita að á barna- og unglingageðdeild (BUGL) er margra mánaða bið eftir þjónustu og á annað hundrað börn á biðlista. Þá eru fleiri hundruð börn og ungmenni á biðlista hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og mörg dæmi um að fjölskyldur þurfi að bíða í allt að tvö ár þar til barn kemst að. Þá er það auðvitað svo að við getum ekki öll notið niðurgreiddrar sálfræðiþjónustu. Ég þekki persónulega mörg tilfelli þar sem fólk í mikilli neyð hefur einfaldlega ekki getað leyft sér að sækja slíka þjónustu.

Samfylkingin er með plan í heilbrigðismálum, allir landsmenn eiga að hafi öruggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Ef þjónustan er sótt yfir heiðina eða í gegnum fjallið þá verður það að vera öruggt, við ætlum líka að uppfæra greiðsluþátttöku hins opinbera þegar heilbrigðisþjónusta er sótt um langan veg og hún nái einnig til fyrirbyggjandi meðferða og taki tekjutap fjölskyldna með í reikninginn.

Geðheilbrigðismál á að taka alvarlega um allt land og hlutirnir þurfa ekki að vera eins og þeir eru í dag. Þetta snýst eingöngu um forgangsröðun og pólitískan vilja.

Höfundur skipar annað sæta á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.