Greiðar og öruggar samgöngur allt árið um kring, hvernig hljómar það?

Víða um land valda stuttir vegkaflar íbúum óþarfa fyrirhöfn og armæðu á ferð þeirra um landið. Þar gildir einu hvort ferðinni er heitið á höfuðborgarsvæðið í leit að þjónustu eða yfir í næsta fjörð til að heimsækja Siggu frænku, vetrarfærð og válynd veður eru þess valdandi að veggöng eru beinlínis eina færa leiðin til að tryggja greiðar og öruggar samgöngur. Þetta á sérstaklega við á Tröllaskaga, Austfjörðum og Vestfjörðum þar sem iðulega er torfært á milli byggða stóran hluta ársins enda eru sextán þeirra átján jarðgangna sem fjallað er um í nýrri jarðgangaáætlun á umræddum svæðum.

Atorka Færeyinga


Þegar rætt er um gangnagerð er iðulega stutt í samanburð við Færeyjar. Færeyingar hafa staðið myndarlega að slíkum framkvæmdum síðustu áratugi, svo eftir er tekið. Sérstök félög hafa verið stofnuð um stærstu veggöng Færeyinga sem að eru að hluta til fjármögnuð með veggjöldum. Þessi félög eru nú þrjú og er hvert þeirra með sérstaka stjórn og fjárhag en innheimta veggjalda er hjá einum aðila, P/F Tunnil. Þá eru umferðarminni göng t.d. með öðrum fjölfarnari sem gerir það að verkum að framkvæmdum sem ellegar ættu ekki uppá pallborðið vegna hagkvæmnissjónarmiða ná fram að ganga. Þannig hafa stjórnvöld staðið vörð um byggðajafnrétti um allar eyjarnar.

Skýr byggðastefna


Atorka Færeyinga endurspeglar skýra byggðastefnu stjórnvalda. Hér á landi hefur byggðaþróun verið á þá vegu að fólk sækir í meira mæli vinnu til nærliggjandi sveitarfélaga, sveitarfélög hafa í auknu mæli sameinast, og við tölum um stór landssvæði sem eitt atvinnusóknarsvæði. Uppbygging samgöngumannvirkja þarf að vera í takti við þessa þróun. Óhætt er að fullyrða að öll veggöng á Íslandi hafi verið til bóta. Ekki aðeins þegar litið er til umferðaröryggis heldur einnig til jákvæðra hagrænna áhrifa á nærliggjandi byggðir/sveitarfélög.

Ný tækni


Nú er verið að smíða bora með nýrri tækni sem bræðir bergið með heitu lofti og eru rafmagnsknúnir kyndilborar þar sem hægt er að bora á margföldum hraða á við það sem tíðkast er í dag eða allt að 1 km. á sólahring í stað 5 til 10 mtr. með þeim hætti sem við þekkjum. Þetta skiptir gríðarlegu máli og ýtir undir að hægt ætti að vera að hraða framkvæmdum enn frekar en nú er.

Áhrifin eru augljós og greiðar samgöngur eru forsenda byggðaþróunar. Við þurfum að sammælast um ákjósanlegasta fyrirkomulagið svo hraða megi uppbyggingu samgöngumannvirkja, þar tel ég skynsamlegt að horfa til þess fyrirkomulags sem tekið hefur verið upp í Færeyjum.

Höfundur er þingmaður Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.