Gróðahyggjan má ekki ráða öllu

Takk fyrir VG í Múlaþingi að styðja okkur, sem erum andvíg laxeldi í Seyðisfirði. Þingmaður VG í kjördæminu er á sömu skoðun. Nú þurfum við formann VG og forsætisráðherra líka í liðið. Við getum ekki látið fólk standa á Austurvelli út af öllum málum, sem eru afgreidd í bakherbergjum í skjóli nætur.

„Takk Magnús fyrir að benda á það augljósa,“ var sagt eftir síðustu grein. Ekkert að þakka, staðreyndirnar eru augljósar. Kvíar eru langt inni á siglingaleiðinni um Seyðisfjörð og akkerisfestingar þeirra mega ekki vera inni á helgunarsvæði Farice-1 strengsins. Skipulagsstofnun bendir skýrt á þetta í sínum niðurstöðum, en það er eins og sveitarstjórnarfólk í Múlaþingi hafi lesið einhverjar aðrar niðurstöður eða loki vísvitandi augunum fyrir þessum staðreyndum. Sama má segja um snjóflóðahættuna í Selsstaðavík, sem ógnar fyrirhuguðum kvíum á þeim stað.

Lítið eða ekkert hefur verið rætt um þessar alvarlegu staðreyndir á opinberum vettvangi í aðdraganda kosninga. Er það hreinlega bannað? Fyrir utan allt annað fellir þetta tvennt laxeldisáformin og hlýtur að leiða til þess að starfsleyfi verði ekki gefið út.

Í staðin er hamrað á nýjum störfum og miklum peningum inn í bæinn. Þversögnin kom svo á framboðsfundi : „ ... fáum litlar tekjur af því sem er synd ...“. Hvað er í gangi? Ég man ekki betur en að Fjarðabyggð hafi kvartað í vetur yfir litlum tekjum af kvíaeldinu og ójafnri tekjuskiptingu sveitarfélaga af fiskeldinu. Hvaða miklu peninga er verið að tala um að komi inn í samfélagið á Seyðisfirði umfram það sem gerist annars staðar?

Ég talaði við einn af fyrrverandi skipstjórum Gullvers. Hann sagðist í sjálfu sér ekki hafa áhyggjur að togaranum í þrengdri siglingaleið. En togarinn er bara lítið brot af stærð margra skipa, sem fara um fjörðinn.

Samgöngustofa telur brýnt að ávallt sé leitað álits heimamanna og annarra, sem reglulega sigla um fjörðinn. Nei, Fiskeldi Austurlands (FA) virðist ekki hafa gert það, og telur sig ekki þurfa að svara eða útskýra neitt eða fara að neinum lögum og reglum. Það virðist allt renna sjálfkrafa í gegn hjá stofnunum ríkisins.

Alla vega sagði oddviti Framsóknarflokksins á framboðsfundi: „... svo virðist sem fátt komi í veg fyrir að eldi fari af stað í firðinum …“ Einhverja vitneskju virðist hún hafa þó leyfi hafi ekki enn verið gefið út. Þarna væri nær að viðurkenna staðreyndir málsins og benda formanni Framsóknarflokksins, sem er innviðaráðherra landsins, á hversu harkalega er þrengt að siglingaleiðinni um Seyðisfjörð og öryggi Farice-1, strengs allra landsmanna. Sá strengur er lykilhlekkur í samskiptum Íslands við umheiminn. Innviðaráðherra ber ábyrgð á hvoru tveggja.

Öryggi þessara innviða er grafalvarlegt mál, sem þarf að taka föstum tökum. Gróðahyggjan má ekki ráða öllu.

Sýnum virðingu og stöndum í lappirnar með meirihluta Seyðfirðinga og fjarskiptaöryggi allra landsmanna.

Svo mættu kjörnir fulltrúar í Múlaþingi beina nokkrum spurningum til FA.

• Hvað verða heils árs störf á Seyðisfirð í alvöru mörg við fiskeldi í firðinum?
• Hver er gerð og stærð pramma, sem þarf við fiskeldið?
• Vitið þið hvað þið eruð að biðja um stórt kvía og athafnasvæði í Sörlastaðavík?
• Gerið þið ykkur grein fyrir þrengd fjarðarins þar sem þið farið fram á eldið?
• Hvert er svar ykkar við neikvæðum áhrifum á ferðaþjónustu, sem bent er á í niðurstöðu Skipulagsstofnunar?
• Ætlið þið að halda áfram þvert á vilja meirihluta íbúa?

Höfundur er brottfluttur Seyðfirðingur


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.