Hákon Aðalsteinsson allur

Hákon Aðalsteinsson, skáld og fyrrum skógarbóndi á Húsum í Fljótsdal, er látinn, á 74. aldursári. Hann lést 6. mars, eftir erfið veikindi. Hákon eignaðist fjögur börn. Eftirlifandi eiginkona hans er Sigrún Benediktsdóttir. Útför hans fer fram í kyrrþey.

e2cf893c-f24b-4914-9a6f-a529adfdb043.jpg

Hákon fæddist að Vaðbrekku í Hrafnkelsdal 13. júlí 1935. Foreldrar hans voru Aðalsteinn Jónsson bóndi og Ingibjörg Jónsdóttir húsmóðir.

Hákon stundaði nám í Héraðsskólanum á Laugum í Reykjadal veturinn 1953-54, lauk meiraprófi bifreiðastjóra á Akureyri 1957 og vélstjóraréttindi fékk hann árið 1960. Hann starfaði framan af sem vélstjóri á skipum en einnig sem bílstjóri og ökukennari. Lokaprófi frá Lögregluskóla ríkisins lauk Hákon árið 1973 og var hann lengi lögregluþjónn á Egilsstöðum og Húsavík. Árið 1992 fluttist hann að Húsum og gerðist skógarbóndi en starfaði jafnframt sem tollvörður við ferjuna Norrænu á Seyðisfirði. Hann rak ásamt konu sinni glæsilega ferðaþjónustu um árabil að Húsum. Árið 2006 seldi Hákon jörð sína í Fljótsdalnum og fluttist til Egilsstaða.

Hákon var landsþekktur hagyrðingur og hafa lög verið samin við mörg af kvæðum hans og vísur eftir hann orðið fleygar. Hann sendi frá sér sjö bækur, þar af þrjár ljóðabækur. Á byggingartíma Kárahnjúkavirkjunar fór Hákon til Noregs og flutti konungi drápu til varnar náttúru Íslands, sem honum var mjög kær.

Ævisaga hans, Það var rosalegt, skráð af Sigurdóri Sigurdórssyni, kom út haustið 1997.

g5p6ocuu.jpg

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.