Logi Már í þriðja sæti Samfylkingar í NA
Logi Már Einarsson, arkitekt á Akureyri ætlar að bjóða sig fram í þriðja sæti í Norðausturkjördæmi í prófkjöri Samfylkingar.
Ég rek ásamt öðrum arkitektastofuna Kollgátu og hef mikla reynslu á sviði mannvirkjagerðar og skipulagsmála.
Þörf er á siðbót í stjórnmálum. Virðingu Alþingis þarf að endurreisa með vönduðum vinnubrögðum, ekki snoturri umgjörð. Ég vil auðmjúka stjórnmálamenn sem týna sér ekki í smáatriðum heldur einbeita sér að heildarmyndinni. Gleyma sér ekki eingöngu í verkefnum dagsins heldur hafa kjark og þor til að horfa til framtíðar. Viðurkenni takmörk sín og séu duglegir við að leita til sérfræðinga. Alþingismenn verða að bregðast við kröfum almennings um beinni þátttöku og opnari umræðu. Alþingi á að endurspegla þarfir og óskir fólksins. Þess vegna þurfum við meiri fjölbreyttni á þing; konur og karla á öllum aldri, með ólíkan bakgrunn. En umfram allt hugmyndaríkt fólk, með sjálfstæðar skoðanir, sem þorir að standa gegn flokksræðinu.
Vandi fyrirtækjanna er vandi heimilanna og rekstarumhverfi þeirra verður að tryggja. Vandamálin verða ekki eingöngu leyst með skammtímalausnum, þó þær séu bráðnauðsynlegar. Við verðum að tryggja stöðugra efnahagsumhverfi, svo fyrirtæki og heimili geti gert áætlanir til lengri tíma. Upptaka Evru er nauðsynlegur liður í því. Við eigum að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið strax og bera síðan þann samning undir þjóðina.