Norðfjarðargöng og Tortola
Sveinn Jónsson skrifar: Samgönguráðherra Kristján L. Möller hélt í gærkvöld fund á Neskaupsstað um samgöngumál á Austur- og Norð-austurlandi. Tíundaði hann og vegamálastjóri, sem með honum var, þar með ágætum að hverju væri unnið á vegum ráðuneytisins á yfirstandandi ári. Ráðherra kynnti m.a. væntingar sínar um að niðurstaða fengist senn um byggingu umferðarmiðstöðvar við Reykjavíkurflugvöll og festi hann þar með í sessi á sínum stað í Vatnsmýrinni. Verk sem þegar höfðu verið ákveðin á vegum ráðuneytisins voru að því er virtist öll meira og minna á áætlun í kjördæmi ráðherra. En þegar kom að Norðfjarðargögnum þá vandaðist nú málið.
Rannsóknir, hönnun og útboðsundirbúningur væri þar einnig allur á áætlun en það vantaði græna ljósið á að útboð og framkvæmdir gætu hafist á áður áætluðum tíma þar sem peninga vantaði vegna bankahruns og kreppunnar, sem af hefur hlotist. Skilja mátti þó á máli ráðherra að framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng yrðu senn komnar af stað enda um einkaframkvæmd að ræða. Fundarmenn setti hljóða í troðfullum sal og voru sem lamaðir. Ráðherra varð að hvetja menn til að tjá sig og þá losuðu menn, sem betur var aðeins um málbeinið.
Ráðherra hafði einnig í upphafi máls síns síns vakið athygli á því að L. í nafni hans stæði fyrir Lúðvík. Undirrituðum þótti lítið leggjast fyrir ráðherra við þessar aðstæður að reyna að slá sér upp á þessum skyldleika í Neskaupsstað, fyrrum höfuðvígi Lúðvíks þess eina og sanna Jósepssonar, en hvað um það.
Kreppan er engin afsökun til að slá á frest því sem Austfirðingum hefur áður verið staðfastlega heitið af stjórnvöldum á siðastliðnum árum um gerð Norðfjarðarganga. Því hefur verið haldið fram nýverið í þessu sambandi, að nærri þriðjungur gjaldeyristekna þjóðarinnar komi úr Fjarðabyggð og má það vel vera. Hvað sem allri kreppu líður hefur búsáhalda-bylting verið gerð í landinu. Ráðherra lifði af þá byltingu og situr nú í aðstöðu með öðrum ráðherrum til að taka á þeim ,,terroristum” sem urðu valdir að bankahruninu hérlendis og koma landinu upp úr kreppunni. Núverandi stjórnvöld verða að aflétta bankaleyndinni og upplýsa strax hverjir terrroristarnir eru, sem hafa komið þjóðinni í þá stöðu sem hún er í. Strax skal hafa á þeim endaskipti (til forna hefðu þeir einfaldlega verið látnir hanga þannig þar til springju út á þeim augun) og hrista svo úr vösum þeirra hvern milljarðatuginn af öðrum þar til fengist hefur upp í það tjón sem þeir hafa valdið. Síðan yrðu þeir best vistaðir á Tortola. Þeir 7 – 9 milljarðar sem Norðfjarðargöng kunna að kosta, eru smáupphæðir í þessu samhengi og fyllilega réttlætanleg fjárfesting í innansveitar samgöngum þar sem framleiðslutekur eru svo sem raun ber vitni, svo ekki sé nú minnst á öryggissjónarmiðin o.fl.
Samgönguráðherra með fjár-og atvinnumálaráðherra, Steingrím J. Sigfússon, sitjandi sér við hlið hlýtur að geta komið því svo fyrir þó tíminn sé naumur til kosninga, að hver þau stjórnvöld sem á eftir verða við völd, geti ekki vikið sér undan því að framkvæmdir við Norðfjarðargöng verði hafnar og lokið á áður tilsettum tíma. Nái þeir þannig staðfestingu fram eiga þeir skilið afgerandi stuðning allra Austfirðinga í komandi kosningum. Allur fagurgali frambjóðenda annarra flokka verður þá hjáróma. Með gerð Norðfjarðarganga yrðum við komin áleiðis með Samgöng, sem tengja miðsvæði Austurlands í eina heild.
Sveinn Jónsson