Systurnar átján í austri

Elma Guðmundsdóttir skrifar:     Ég verð alltaf jafn hissa þegar ég hitti ferðavant fólk sem segist ekki hafa komið til Færeyja. Þetta minnir mig á þegar Siggi Nobb sem hafði siglt um öll heimsins höf og komið til fjölmargra lands, spurði svo Jónas Árnason; Jónas, hvernig er á Þingvöllum?

Færeyjar

 

Mér var boðið til Færeyja í haust ásamt fjölmiðlafólki frá Suðvesturhorninu og Vestmannaeyjum. Stutt ferð en skemmtileg en tíminn vel nýttur og við fórum víða og síðast en ekki síst borðuðum við yndislegan mat, bæði færeyskan og alþjóðlegan. Yndislegt viðmót fólksins og skoðanir þess gera dvöl í Færeyjum sérstaka og ánægjulega.
Það er auðvelt að ferðast um Færeyjar. Vegir allir eru fyrir löngu malbikaðir og ferjusiglingar eru mörgum sinnum á dag milli þeirra eyja sem ekki eru í vegasambandi. Það tekur ekki nema um það bil tvær klukkustundir að aka frá Þórshöfn að Viðareiði sem er nyrsta byggðin í Færeyjum. Þegar farið er frá flugvellinum í Sörvogi til Klakksvíkur er farið í gegnum fimm jarðgöng, þar af tvö undir hafsbotni.

 

Þórshöfn er minnsta höfuðborg í Evrópu

 

Þórshöfn myndaðist umhverfis Þingnesið þar sem landnámsmenn stofnuðu þing Færeyja í kringum árið 900. Þingið ber enn sama nafn; Lögþingið og er elsta löggjafarþing heims. Þing voru haldin á nesinu að sumarlagi og voru í upphafi einungis tveir bæir í Þórshöfn. Þórshöfn varð kaupstaður og um leið höfuðstaður Færeyja árið 1866. Nú er Þórshöfn miðstöð nútímalífs Færeyinga. Þar er ein aðalhöfn landsins, aðsetur landsstjórnar og helstu menntastofnanna og flest stærri fyrirtæki starfa þar.
Þórshöfn er nútímalegur bær með háskóla og fjölmörg söfn sem vert er að skoða.Þórshöfn á gömlu vígin sín ennþá. Þau eru á tanganum austan við Austurvog, upp af stórskipahöfninni. Þar liggja nokkrar koparfallbyssur á innsta virkisveggnum, með kórónu og fangamarki mörkuðum í veðraðan málminn.

 

Mykines og Bö

 

Næsta dag var haldið út á flugvöll, þar stigið um borð í þyrlu og flogið út á Mykines. Það var þrútið loft og þungur sjór og sá ægifagri Tindhólmur var hulinn þoku. Þrátt fyrir allar mínar heimsóknir til Færeyja þá var þetta í fyrsta skipti sem ég kom á Mykines.
Mykines er ekki nes, heldur smáeyja vestan Syðravogs.  Hún er þekkt fyrir fuglabjörgin og fjörugt fuglalíf.  Þar þýðir ekki að reyna lendingu nema í góðu veðri, þannig að eyjan er oft sambandslaus í marga daga í einu.  Ferðamenn, sem ætla til Mykiness, ættu að ráðgera dvöl í Vogum til að sæta lags, ef þeir ætla þangað með ferjunni. Þyrluflug er hinn kosturinn, sem oft er nýttur, þegar ferjan getur ekki lent.
Á Mykinesi búa yfir vetrartímann aðeins 10 manns. Það eru nálægt 50 hús í þorpinu sem flest eru notuð sem sumarhús og þar er skóli og kirkja. Gamla byggingarlagið færeyska er á húsunum í þorpinu og bátar eru í nausti í í tugum metra hæð yfir sjávarmáli. Engir bílar eru á Mykinesi en allir vegir malbikaðir.

 

Nólsey

 

Þar er lítið þorp, öllu stærra en í Mykinesi en þar býr mikill höfðingi, Emil Thomsen, 93 ára gamall. Hann tók á móti hópnum heima hjá sér, í gömlu færeysku húsi. Emil fór á sínum tíma til Ítalíu til að læra óperusöng. Áður en námið hófst sá hann nælonsokkabuxur á hagstæðu verði og ákvað að kaupa nokkur stykki til að selja í Færeyjum. Að lokum fór svo að ekkert varð úr söngnáminu en Emil stóð í öflugum verslunarrekstri um langt skeið. Hann er hins vegar mikill þjóðernissinni og fannst slæmt hversu lítið væri til af færeyskum bókmenntum. Hann seldi því allt sitt og fór að gefa út færeyskar bækur.
Eftir heimsóknina var haldið aftur um borð í Norðlýsing og þar beið okkar þvílík sjávarréttaveisla sem ferðamálafrömuðurinn, skipstjórinn og listakokkurinn Birgir Enni hafði útbúið. Siglingin út og kringum Nólsey var stórbrotin og í eynni er sagan öll. Þar fæddist sjóhetjan og frelsisvinurinn Nólseyjar-Páll og til Nólseyjar var skosk prinsessa send í útlegð svo hún gæti ekki eignast þann mann sem hún elskaði.

 


Kirkjubær

 

Síðasti viðkomustaður hópsins í þessari ferð var gamla biskupssetrið í Kirkjubæ við suðausturströnd Straumeyjar, 11 kílómetra frá Þórshöfn. Í Kirkjubæ hefur sama fjölskyldan búið frá 16. öld eftir að biskupssetrið var lagt niður.
Á Kirkjubæ eru tvær kirkjur, Ólafskirkja frá 1100, sem er enn í notkun og Magnúsarkirkja frá byrjun 14. aldar en sú komst aldrei í notkun og er rústir einar. Reyndar eru Færeyingar búnir að byggja yfir kirkjuna, ætla koma varanlegu þaki yfir hana og nýta sem safn. Við kirkjurnar er einnig íbúðahús, líklega eitt elsta timburhús sem enn er notað í Færeyjum en húsið er afar
virðulegt. Í baðstofunni var borðaður kvöldverður og að honum loknum var stiginn færeyskur dans. Færeyski hringdansinn er beinlínis afkomandi og áframhald hins fræga hringdans miðaldanna, sprottinn upp í Frakklandi og breiddist þaðan hratt út.
Á heimleiðinni stoppuðum við á Hvítanesi, en þar er sjóminjasafn. Þar er meðal annars að finna stefni skips sem notað var við sjórán í Færeyjum 1629, þeirra Tyrkjarán, en skipið sökk við Færeyjar. Leiða má líkum að því að skipið sé svipað að stærð þeim skipum sem notuð voru í Tyrkjaráninu í Vestmannaeyjum

 

Til Færeyja

Það er einstaklega hagkvæmt og auðvelt að ferðast til Færeyja. Fyrir Austfirðinga og aðra landsmenn sem vilja hafa bílinn með er Norræna auðveldasti og besti kosturinn. Ferjan siglir vikulega á milli Seyðisfjarðar og Þórshafnar og tekur siglingin um átján tíma.
Atlantic Airways flýgur tvisvar í viku á milli Reykjavíkur og Sörvogs, tæplega tveggja tíma ferð og er allt gott að segja um þann ferðamáta nema afgreiðsluna á Reykjavíkurflugvelli sem er til háborinnar skammar.

 

 Færeyjar

 

 ---

 

Færeyjar

 

---

 

Færeyjar

 

---

 

Færeyjar

 

---

Færeyjar 

 

 

 

Myndir/EG

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.