Taktu þátt í Styrkleikunum – einstök upplifun!

Styrkleikar Krabbameinsfélags Íslands verða haldnir í fyrsta sinn á Egilsstöðum 26. ágúst og standa yfir í sólarhring. Áður hafa Styrkleikarnir verið haldnir tvisvar sinnum á Selfossi. Um alþjóðlegan viðburð er að ræða sem fer fram árlega á yfir 5000 stöðum í yfir 30 löndum um allan heim. Hátt í 10 milljónir taka þátt á hverju ári og fer fjölgandi.

Krabbameinsfélag Íslands gekk til liðs við Global Relay for Life samtök í eigu ameríska krabbameinsfélagsins og öðlaðist þar með rétt á að halda Relay for Life hér á landi. Íslenska nafnið á viðburðinum er Styrkleikarnir sem er orðaleikur og minnir okkur á styrkinn sem við finnum í samstöðunni, við það að ganga saman til að standa með fólki sem hefur verið snert af krabbameinum.

Hvað eru Styrkleikarnir?


Styrkleikarnir eru fjölskylduviðburður sem snýst um að styðja við, heiðra eða minnast þeirra sem hafa fengið krabbamein. Leikarnir standa yfir í sólarhring, sem er táknrænt fyrir að það fæst engin hvíld frá krabbameini. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Heiðursgestir leikanna eru þeir sem greinst hafa með krabbamein og sérstök dagskrá tileinkuð þeim.

Viðburðurinn er opinn öllum og það kostar ekkert að vera með. Mikið er lagt upp úr því að viðburðurinn sé fyrir alla og allir fari þetta á sínum hraða.

Stór eða smá lið


Fjölskyldur, vinahópar, fyrirtæki, félagasamtök eða aðrir skrá sig sem lið á styrkleikarnir.is og vinna svo saman að því að hafa fulltrúa á hreyfingu með boðhlaupskefli allan sólarhringinn. Þú þarft ekki að vera hluti af liði til að vera með því þú getur skráð þig í Landsliðið, það er öllum opið.

Liðin og einstaklingarnir í liðunum er það sem gefur viðburðinum lit. Styrkleikarnir eru kjörið tækifæri til þess að hrista hópa saman með sameiginlegt markmið. Hvert lið ákveður hversu mikið það vill leggja í sína þátttöku en því meira sem liðið vinnur að því að gera viðburðinn einstakan því stærri verður upplifunin fyrir hvern og einn.

Góðar aðstæður á Egilsstöðum


Styrkleikarnir eru haldnir í samvinnu við Krabbameinsfélag Austurlands og Krabbameinsfélag Austfjarða, einnig er gott samstarfi við Sveitarfélagið Múlaþing. Styrkleikarnir verða í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum þar sem aðstæður eru góðar og fallegt útivistarsvæði allt í kring.

Styrkleikarnir eru einstök upplifun sem við hvetjum allta til að taka þátt í - sjáumst á Egilsstöðum 26. ágúst.

Allar nánari upplýsingar um Styrkleikana má finna á styrkleikarnir.is


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.