Unga fólkið aftur heim í Múlaþing

Nú horfum við á þá staðreynd að ungt fólk er ekki endilega að koma aftur heim eftir að námi þeirra líkur. Fólk flyst suður til höfuðborgarinnar til að ná sér í menntun sem passar þeirra áhugasviði en kemur ekki endilega heim með þá menntun. Hver er ástæðan?

Maður gerir sér í hugarlund hvað stendur í vegi fyrir því að unga fólkið okkar komi aftur heim, mögulega erum við að horfa á of lítið framboð atvinnutækifæra eða fjölbreytni í atvinnulífinu. Við vitum nú að það er alltaf eitt stórt verkefni að námi loknu að afla sér reynslu í atvinnulífinu í tengslum við það nám sem varð fyrir valinu. Eru það kannski óstöðugir innviðir eða ekki nægilegt framboð í þjónustu á svæðinu.

Ég tel að allt þetta haldist fast í hendur, innviðir og atvinnumálin. Það er Múlaþingi til hagsbóta að finna lausn á málinu og að laða unga fólkið aftur heim. Með unga fólkinu kemur kraftur og nýsköpun sem þannig gætu ýtt undir fleiri tækifæri í atvinnulífinu.

Ein lausn hefur verið það samstarf sem verið er að setja á laggirnar við háskóla í Skotlandi sem ber nafnið University of Highlands and Islands, það mun bæta við námsúrval á háskólastigi á svæðinu, en það verður að halda rétt á spilunum og passa að menntunin nýtist atvinnulífinu, þannig að samstarf á milli skólans og sveitarfélagsins skili sér í því að einstaklingar geti nýtt námið á svæðinu að námstíma loknum. Rannsóknir sýna að einn af lykilþáttum í vexti og viðgangi landssvæða í nútímasamfélögum er samstarf háskóla og atvinnulífs. Með auknu samstarfi háskólans og sveitarfélagsins getum við náð að auka hagvöxt á svæðinu og nýta sóknarfærin.

Í Múlaþingi er gott að búa, það er stutt í útivistarparadísir úr öllum áttum og menningin og umhverfið er ákveðin sérstaða hjá okkur. Margt gott er hægt að segja um ágæti þess að búa hér og eflaust eru fleiri sem myndu kjósa að búa hér ef tækifærin væru fleiri.

Foreldrar, afar, ömmur og ættingjar vilja allir sjá fólkið sitt nær sér. Að það sé eitthvað sem standi í vegi fyrir því að fólk kjósi að koma aftur heim og setjast hér niður er þróun sem við viljum snúa við. Ég brenn fyrir þessu málefni, því ég sem móðir vil að börnin mín fái sömu tækifæri og annarstaðar þar sem framboð er meira, hvað varðar menntaveg, atvinnutækifæri og fleira. Við þurfum að eyða þessari óvissu með metnaðarfullri framtíðarsýn og skýrri stefnumótun sveitarfélagsins í heild.

Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi og sækist eftir 3. sæti listans.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.