AFL undirbýr kröfugerð: Horfur á hörðum kjaravetri

hjordis thora sigurthorsdottir aflAFL-Starfsgreinafélag efnir til fjögurra félagsfunda á næstu dögum í tengslum við gerð mótun kröfugerðar félagsins vegna komandi kjaraviðræðna. Formaður félagsins segir fundina mikilvæga því þar verði línurnar lagðar.

„Á þessum fundum verður grunnurinn að kröfugerð AFLs lagður. AFL Starfsgreinafélag er þriðja fjölmennasta verkalýðsfélag landsins í dag og þess vegna er mikilvægt að sjónarmið félagsmanna komist vel til skila," segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs.

Síðar í mánuðinum verði svo kröfugerðn send Starfsgreinasambandi Íslands, sem svo leggur fram kröfugerð aðildarfélaga sinna.

Hjördís segist vera bjartsýn að eðlisfari, en óneitanlega séu horfur á hörðum kjaravetri. „Við höfum heyrt viðhorf Samtaka atvinnulífsins, sem talar um nauðsyn þess að semja á „hóflegum" nótum. Á sama tíma er verið að semja við ýmsar aðrar atvinnugreinar um miklar hækkanir.

Almennt launafólk sættir sig ekki við að sitja eftir, við hljótum að horfa til nýgerða samninga. Fundirnir eru þess vegna mikilvægir. Þar verða línurnar sem sagt lagðar," segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður AFLs Starfsgreinafélags.

Félagsfundir í verkamannadeild AFLs verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

Víkurbraut 4 Hornafirði fimmtudag 15. janúar kl. 18:00
Hótel Héraði Egilsstöðum laugardaginn 17. janúar kl. 14:00
Búðareyri 1 Reyðarfirði mánudaginn 19. janúar kl. 18:00
Lónabraut 4 Vopnafirði þriðjudaginn 20. janúar kl. 17:00

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.