Alcoa styrkir náttúruvernd og minjavörslu á Gerpissvæðinu
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 20. júl 2022 16:16 • Uppfært 20. júl 2022 16:16
Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum, Alcoa Foundation hefur veitt Fjarðabyggð 130 þúsund dollara styrk til að stuðla að náttúruvernd á Gerpissvæðinu og Hólmanesi.
Styrkurinn var formlega veittur í Viðfirði síðasta föstudag. Þar var hópur á vegum Fjarðabyggðar að vinna að því að byggja upp göngustíg á svæðinu, sem er þeirrar vinnu sem styrkurinn var veittur til. Vinnan fólst meðal annars í því að viðhalda gömlum hleðslum og veita vatni frá stígnum.
Styrkurinn, sem var greiddur til Fjarðabyggðar á síðasta ári, nam um 20 milljónum íslenskra króna á þáverandi gengi. Styrkurinn er annars vegar nýttur í að vakta flóru og fánu í fólksvöngum Fjarðabyggðar og hins vegar til að varðveita menningarminjar sem felst í að endurheimta gamlar hleðslur í stígum á svæðinu.
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri Fjarðabyggðar tók formlega við styrknum fyrir hönd sveitarfélagsins: „Þessi styrkur er sveitarfélaginu mikilvægur því fyrir tilstilli hans er hægt að vinna að verkefnum á sviði náttúruverndar og minjavörslu á þessum mikilfenglegu svæðum í Fjarðabyggð. Við erum þakklát Alcoa Foundation að veita okkur tækifæri til að sinna jafn vel og raun ber vitni þessum verkefnum.“
Einar Þorsteinsson forstjóri Alcoa Fjarðaáls afhenti styrkinn fyrir hönd Alcoa Foundation og hann sagði samfélagslega mikilvægt að öflugt fyrirtæki á borð við Alcoa taki virkan þátt í að byggja upp samfélagið á Austurlandi.
„Alcoa Foundation er stór sjóður sem við njótum þess að geta sótt styrki í hér fyrir nærsamfélagið. Sjóðurinn styrkir verkefni á sviði umhverfisverndar og menntunar og verkefnið sem Fjarðabyggð sótti um er frábært dæmi um verkefni þar sem stuðlað er að verndun náttúru hér á svæðinu.“
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri Fjarðabyggðar og Anna Berg Samúelsdóttir fráfarandi umhverfisstjóri Fjarðabyggðar tóku við styrknum frá Einari Þorsteinssyni forstjóra Alcoa Fjarðaáls og Dagmar Ýr Stefánsdóttur yfirmanni samskipta og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaáli. Mynd: Alcoa