Skip to main content

Arnfríður Eide kosin í stjórn Hafnasambandsins

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 31. okt 2022 14:31Uppfært 31. okt 2022 14:31

Arnfríður Eide Hafþórsdóttir öryggisstjóri Loðnuvinnslunnar kemur ný inn í stjórn Hafnarsambands Íslands. Hún var kosin í stöðuna fyrir hönd Fjarðabyggðahafna.

Aðalfundur Hafnasamband Íslands fór fram í Félagsheimilinu Klifi í Snæfelsbæ fyrir helgina. Á fundinum var stjórn sambandsins árin 2022-2024 kjörin. Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri í Hafnarfirði, fékk endurnýjað umboð til að leiða Hafnasambandið tvö ár að því er segir í tilkynningu.

“Auk hans sitja áfram í stjórninni þau Pétur Ólafsson, Hafnasamlagi Norðurlands og Alexandra Jóhannesdóttir frá Skagastrandarhöfnum. Þá sitja varamennirnir Björn Arnaldsson, frá Höfnum Snæfellsbæjar, og Hanna Björg Konráðsdóttir Reykjaneshöfn áfram.

Ný inní stjórnina koma þau Gunnar Tryggvason frá Faxaflóahöfnum, Arnfríður Eide Hafþórsdóttir Fjarðabyggðahöfnum, Þórdís Sif Sigurðardóttur Vesturbyggðahöfn og Elliði Vignisson Þorlákshöfn. Þá var Dóra Björk Gunnarsdóttir frá Vestmannaeyjahöfn kjörin í varastjórn.“

Mynd: austurbru.is