Skip to main content

Blængur NK með afla upp á 274 milljónir króna

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 27. okt 2022 14:26Uppfært 27. okt 2022 14:26

Frystitogarinn Blængur NK er að landa í Neskaupstað í dag. Aflinn er rúmlega 570 tonn upp úr sjó að verðmæti 274 milljónir króna.


Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir að veiðiferðin hófst í lok septembermánaðar þannig að hún stóð í tæpan mánuð. Skipstjóri framan af var Sigurður Hörður Kristjánsson en síðan settist Lúðvík Emil Arnarson Kjerúlf í skipstjórastólinn og er þetta í fyrsta sinn sem hann gegnir skipstjórastarfinu um borð.

„Jú, auðvitað eru það tímamót en ég hef verið stýrimaður á Blængi frá því að Síldarvinnslan eignaðist skipið árið 2015,“ segir Lúðvík aðspurður um hvernig var að vera skipstjóri.

Þá segir að Sigurður Hörður var skipstjóri framan af túrnum og þá var reynt við grálúðu og karfa í Skerjadýpinu, á Hampiðjutorginu og í Kartöflugarðinum í endalausum brælum. Fyrri hluti túrsins var semsagt erfiður veðurfarslega. Skipið þurfti síðan að fara inn á Ísafjörð vegna smávægilegrar bilunar og þá tók Lúðvík við af Sigurði.

„Við fórum út frá Ísafirði 23. september og þá var haldið á Halamið. Aflinn var blandaður en það fiskaðist ágætlega. Við fengum þarna ágætt af ufsa en síðan var veitt í Drangál, á Straumnesbanka og Hornbanka, komið við á Skagagrunni, teknir tveir góðir sólarhringar á Sléttugrunni og síðan fengum við fína rest á Rifsbanka,“ segir Lúðvík.

Aflinn í túrnum er 190 tonn af ufsa, 110 tonn af þorski, 80 tonn af ýsu og síðan nokkuð af grálúðu, gullkarfa og djúpkarfa. Þá má nefna að það fékkst óvenju mikið af löngu í túrnum, að sögn Lúðvíks.

„Nú verður haldið til Póllands þar sem menn ætla að skemmta sér ærlega á árshátíð,“ segir Lúðvík í lokin.

Mynd: Landað úr Blæng. Mynd: Smári Geirsson<