Flóttafólki frá Úkraníu boðið á rokktónleika í Valaskjálf
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 17. okt 2022 16:34 • Uppfært 18. okt 2022 09:32
Flóttafólkinu frá Úkraníu, sem nú dvelur á Eiðum, á rokktónleika í Valaskjálf á Egilsstöðum um helgina.
Fjallað er um flóttafólkið á heimasíðu Múlaþings. Eins og kunnugt er af fréttum tók sveitarfélagið á móti flóttafólki frá Úkraínu í síðustu viku. Hópurinn samanstendur af 16 einstaklingum á aldrinum 22 – 67 ára og eru einstaklingarnir innan hans eins ólíkir og þeir eru margir.
Dvöl þeirra á Íslandi hefur verið mislöng en sá sem hefur verið hér lengst kom í apríl og sá sem hefur verið hér skemmstan tíma kom til landsins fyrir rúmri viku síðan. Hópurinn hefur aðstöðu á Eiðum, þar sem mikil uppbygging hefur verið undanfarið,“ segir á heimasíðunni.
Rætt er við Fríðu Margréti Sigvaldadóttur sem er verkefnastjóri í málefnum flóttafólks. Hún segir að hópinn einkenni þakklæti og áhugi á landi og þjóð.
„Þá vilja þau gjarnan komast á vinnumarkaðinn og verða þeim fundinn úrræði í samvinnu við Vinnunmálastofnun. Þá mun Vinnumálastofnun, í samstarfi við Austurbrú, einnig koma að íslenskukennslu fyrir hópinn sem og fræðslu um Ísland, menninguna, og nærumhverfi á námskeiði sem kallast Landneminn,“ segir Fríða Margrét.
„Þessa dagana standa yfir einstaklingsviðtöl þar sem staðan er tekin og út frá þeim er greint hvaða stuðning hver og einn þarf.“
Þá segir að þess má geta að öllum hópnum var boðið á 70‘s rokkveislu í Valaskjálf um helgina en tónleikarnir voru haldnir til styrktar geðheilbrigði á Austurlandi. Það voru þeir sem héldu tónleikana sem buðu hópnum að koma. Fengin var rúta að láni og einn hljómsveitarmeðlima tók að sér að keyra hópinn fram og til baka. Þetta vakti mikla lukku innan hópsins og skemmtu þau sér vel og voru þakklát fyrir boðið.
„Á næstu misserum mun sveitarfélagið taka á móti fleira flóttafólki og eru íbúar sveitarfélagsins hvött til að bjóða þau velkomin,“ segir á heimasíðunni.
Mynd: mulathing.is