Rjúpnaveiðimenn sýni hófsemi NA-lands
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 19. okt 2022 09:05 • Uppfært 19. okt 2022 09:11
„Þá hvetur ráðherra veiðimenn til þess að flykkjast ekki á Norðausturlandið til veiða og eru veiðimenn á því svæði hvattir sérstaklega til að sýna hófsemi.“
Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Stjórnarráðsins. Þar hefur Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest að veiðitímabil rjúpu verður frá 1. nóvember - 4. desember í ár. Heimilt verður að veiða rjúpu frá og með föstudegi til og með þriðjudags, frá kl. 12 þá daga sem veiði er heimil og skal veiði eingöngu standa yfir á meðan að birtu nýtur.
Þá segir að ítrekað er að sölubann er á rjúpum og á það jafnt við um sölu til endursöluaðila og annarra.
„Ráðlögð veiði úr stofninum á þessu ári er um 26 þúsund fuglar, en stærð rjúpnastofnsins hefur dregist saman síðustu ár. Biðlar ráðherra til veiðimanna að sýna hófsemi í veiðum í ljósi viðkomubrests á Norðausturlandi og Vesturlandi, en slæmt tíðarfar í vor og sumar er líklegasta skýringin á viðkomubrestinum. Þá hvetur ráðherra veiðimenn til þess að flykkjast ekki á Norðausturlandið til veiða og eru veiðimenn á því svæði hvattir sérstaklega til að sýna hófsemi,“ segir á vefsíðunni.
„Ég hef lagt áherslu á að Umhverfisstofnun setji í forgang að hraða vinnu við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir rjúpuna og að á grundvelli hennar verði fyrirkomulag veiða í framtíðinni ákveðið,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningunni.
Jafnframt segir að fyrir liggi tímasett verkáætlun um gerð stjórnunar- og verndaráætlunarinnar. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir miklu samráði og samtali við hagsmunaaðila og að áætlunin verði tilbúin til kynningar um miðjan maímánuð 2023
Mynd: Stjórnarráðið