Skip to main content

Síldarvinnslan og BioMar í samstarf um byggingu fóðurverksmiðju

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 16. ágú 2022 10:42Uppfært 16. ágú 2022 10:43

Síldarvinnslan í Neskaupstað og BioMar Group hafa undirritað viljayfirlýsingu um byggingu fóðurverksmiðju fyrir fiskeldi hérlendis. Um er að ræða fjárfestingu upp á 7-10 milljarða íslenskra króna.


Í tilkynningu fyrirtækjanna segir að stefnan sé að byggja upp umhverfisvæna verksmiðju þar sem kolefnisspor sé lágmarkað með notkun umhverfisvænnar orku. Með verkefninu skapist tækifæri til að nýta framleiðslu Síldarvinnslunnar til fóðurgerðar með þeim aðferðum sem BioMar hafi þróað með ítarlegum rannsóknum.

Í svari við fyrirspurn Austurfréttar segir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, að ekki sé búið að ákveða hvar verksmiðjan rísi. Það sé hluti af þeirri vinnu sé framundan er, taka á endanlega ákvörðun um verkefnið fyrir lok þessa árs og byrja svo að byggja verksmiðjuna sjálfa. Um er að ræða fjárfestingu upp á 50-70 milljarða Bandaríkjadala eða tæpa 7-10 milljarða íslenskra á gengi dagsins.

Í Neskaupstað standa yfir framkvæmdir við nýja fiskimjölsverksmiðju. Með henni aukast afköstin þar um 1.000 tonn á sólarhring, úr 1.400 í 2.400. Gunnþór segir samstarfið við BioMar falla vel að því sem verið sé að gera í fiskimjölsverksmiðjunni. Ýmsir þættir ráða staðsetningu fóðurverksmiðjunnar, annars vegar aðgengi að hráefni, hins vegar hvar verið er að byggja upp eldi.

BioMar er danskt og meðal fremstu fyrirtækja heims á sviði fóðurframleiðslu fyrir fiskeldi. Samstarf þess við Síldarvinnslunnar er ekki nýtt. Síldarvinnslan hefur í 20 ár verið meirihlutaeigandi í fóðurverksmiðjunni Laxá á Akureyri, en hún hefur flutt inn og dreift vörum frá BioMar.

„Það er ljóst að þetta er áhugaverður samstarfsaðili og í rauninni mjög áhugavert að eldið á Íslandi sé með íslenskt fóður,“ segir Gunnþór við Austurfrétt.

Í tilkynningunni segir hann ennfremur: „Við höfum í lengri tíma átt í góðu sambandi við BioMar og þetta samstarfsverkefni fellur vel að starfsemi beggja fyrirtækja. Bæði fyrirtækin leggja mikla áherslu á að hafa sjálfbærni að leiðarljósi og reynsla okkar á sviði framleiðslu fiskimjöls og lýsis með sjálfbærum hætti mun nýtast vel við framleiðslu á hágæðafóðri fyrir íslenskt fiskeldi og fóðrið verður samkeppnisfært við erlent fóður. Þetta er mikilvægur áfangi í aukinni verðmætasköpun á okkar framleiðsluvörum“ segir Gunnþór.

Þar segir Carlos Diaz, forstjóri BioMar, ennfremur: „Það er mikilvægur hluti okkar stefnu að vaxa og nýta tækifæri sem bjóðast með sjálfbærni að leiðarljósi. Samstarf við Síldarvinnsluna er frábært tækifæri fyrir okkur til að vaxa með íslenska markaðnum á sjálfbæran hátt,“ segir Carlos Diaz.

Í tilkynningunni er rakið að fiskeldi við Ísland hafi tífaldast frá árinu 2010 og útlit fyrir að það haldi áfram. Til þessa hafi vöxturinn verið í sjókvíaeldi en nú séu áform uppi um landeldi.

„Ísland er kjörin staðsetning fyrir fóðurframleiðslu þar sem gott hráefni er til staðar og unnt að framleiða með hreinni grænni orku. Á sama tíma mun framleiðslan draga mjög úr þörfinni á að flytja fóður til landsins. Þetta verkefni mun hafa mjög jákvæð umhverfisleg áhrif. Bygging fóðurverksmiðju er mikilvægur þáttur í að auka samkeppnishæfni Íslands og eykur þekkingu okkar á undirstöðu fiskeldis sem byggir á góðu fóðri,“ segir þar að lokum.