Vök Baths handhafi Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar árið 2022

Vök Baths hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar fyrir árið 2022. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir athyglisverðar nýjungar í íslenskri ferðaþjónustu. Framkvæmdastjóri segir verðlaunin áminningu um að nauðsynlegt sé að dreifa fjárfestingu í ferðaþjónustu um landið.

„Við hjá Vök Baths erum virkilega stolt og ánægð með að hljóta Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar 2022,“ er haft eftir Aðalheiði Ósk Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Vök Baths, í tilkynningu.

„Vök Baths er mjög gott dæmi um mikilvægi þess að við hugsum ekki aðeins um það að dreifa ferðamönnum um landið heldur að dreifa fjárfestingum og uppbyggingu um landið. Fjárfesting og uppbygging sem þessi laðar ferðamenn hvaðanæva að til þess að heimsækja Austurland.

Þeir eru líklegri til að staldra við og nýta þá þjónustu sem þar er í boði og kynna sér hvað samfélagið á Austurlandi hefur upp á að bjóða. Það að hljóta Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar veitir okkur góðan byr til að gera enn betur.“

Sótt í sögu og umhverfi svæðisins

Í umsögn dómnefndar Samtaka aðila í ferðaþjónustu (SAF) er talið upp að Vök Baths séu heitar laugar á bakka Urriðavatns. Þau samanstandi af tveimur fljótandi sjóndeildarlaugum, þeim einu sinnar tegundar á Íslandi, tveimur heitum laugum á landi, vaðlaug, eimbaði, köldum úðagöngum og veitingastaðnum Vök bistro.

Nafn sitt dregur staðurinn af heitum vökum sem birtust reglulega á ísi lögðu Urriðavatninu vegna jarðhita sem streymdi upp á yfirborðið. Laugarnar sem nú liggja í vatninu hafa sama form og vakirnar sem mynduðust í ísnum.

Gestum Vök Baths býðst ekki bara að baða sig í heitu laugunum og köldu Urriðavatninu því í móttöku staðarins er tebar þar sem hægt er að gæða sér á te sem gert er úr jurtum úr nágrenninu og blandað við heitt vatnið sem kemur beint úr jörðinni.

Hönnun staðarins endurspeglar þema náttúrunnar í kring og leikur lerki þar lykilhlutverk sem allt var sótt í Hallormsstaðaskóg, elsta þjóðskóg Íslands. Mikil áhersla er lögð á að sækja í staðbundin hráefni þar sem unnt er. Má þar nefna lífrænt ræktaðar jurtir frá Vallanesi á tebarnum og bjóra sem framleiddir eru í samstarfi við brugghúsið Austra.

„Vök Baths er mikilvæg og ánægjuleg nýjung fyrir Austurland. Staðurinn hefur bæði mikið aðdráttarafl fyrir erlenda sem innlenda ferðamenn en er um leið nýjung í þjónustu á svæðinu sem færir aukin lífsgæði til heimamanna og nærsveitunga,“ segir í tilkynningunni.

Dómnefndin einhuga

Dómnefnd Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar skipuðu Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF sem jafnframt var formaður dómnefndar, Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, og Eyþór Ívar Jónsson, stofnandi og forseti Akademias. Var það samdóma álit að velja Vök Baths úr 14 tilnefningum sem bárust.

Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar eru afhent 11. nóvember ár hvert á afmælisdegi SAF. Eliza Reid afhenti verðlaunin við athöfn í Hörpu í dag. Verðlaununum er ætlað að hvetja frumkvöðla í ferðaþjónustu til dáða.

Þetta er í nítjánda sinn sem þau eru afhent en þau hafa einu sinni áður farið austur. Óbyggðasetur Íslands fékk þau árið 2016.

Frá verðlaunaafhendingunni í dag. Frá vinstri: Eliza Reid, Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Vök Baths, Ívar Ingimarsson einn eigenda Vök Baths og Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður stjórnar SAF og dómnefndar. Mynd: SAF


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.