Héldu jólastund við Helgustaðanámu

Hópur útivistarfólks kom saman við Helgustaðanámu í utanverðum Reyðarfirði í gærkvöldi og hélt þar var litla aðventustund. Hópurinn hefur hist reglulega í haust og farið út að ganga í myrkrinu.

„Þetta er fimmta ferðin okkar og okkur langaði að gera eitthvað öðruvísi fyrir jólin. Við vorum með landvörð með okkur sem sagði frá námunni. Við kveiktum varðeld í fjörunni og ég söng nokkur lög fyrir fólkið.

Hver kom eitthvað matarkyns fyrir sig og aðra. Við dúkuðum upp í fjörunni og áttum góða stund,“ segir Díana Mjöll Sveindóttir á Eskifirði.

Díana kom í haust á fót hópi sem hún kallar „Út að leika.“ Hún segir tilgang hópsins vera að hvetja fólk til að fara út og hreyfa sig í vetrarmyrkrinu. „Ég vildi fá fólk til að njóta þess að vera úti í myrkrinu. Færðin utandyra getur verið alla veganna og við erum að æfa okkur í að verða betri, að ganga um með höfuðljós og slíkt,“ segir Díana Mjöll.

Helgustaðanáma er ein frægasta silfurbergsnáma í heimi þar sem silfurberg var grafið frá 17. öld fram á fyrri hluta þeirrar 20.. Silfurberg eru sérlega tærir kalsít steinar og skiptu miklu máli í vísindarannsóknum á 19. og 20. öld. Hún var friðlýst sem náttúruvætti árið 1975 og silfurbergið í henni er friðlýst í dag.

Díana Mjöll segir aðstæður við námuna hafa verið ágætar í gærkvöldi. „Við þurftum að fara í broddana efst, annars voru aðstæður. Hluti af þjálfuninni felst í að kenna fólki að vera búið þannig það geti verið lengur úti, með broddana í bakpokanum og drykk meðferðis.

Eina var að frostið var bara ein gráða. Það var spáð -10°C og var mun kaldara innar í firðinum en þarna virðist hafa verið einhver hitapollur. Það er svo gaman að vera úti í miklu frosti og stillu.“

Hópurinn við Helgustaðanámu í gærkvöldi. Mynd: Díana Mjöll Sveinsdóttir

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.