Helgin: Hýr halarófa orðin tíu ára

Gleðigangan Hýr halarófa á Seyðisfiðri fagnar tíu ára afmæli sínu um helgina. Um leið efnir Hinsegin Austurland til Regnbogahátíðar með viðburðum á Seyðisfirði og Héraði.

Regnbogahátíðin hófst í gær með regnbogamessu á Seyðisfirði. Í dag verða hátíðarhöld á Egilsstöðum. Regnbogagata verður málið við Fagradalsbraut klukkan 17:00 en hálftíma síðar verður Regnbogahátíðin formlega sett í Sláturhúsinu. Þar verða tónlistaratriði, hátíðaræður og verðlaunaafhending í kökukeppni ásamt öðru. Í kvöld klukkan 21:00 verður síðan regnbogapartý í Tehúsinu.

Halarófan sjálf fer af stað úr miðbæ Seyðisfjarðar klukkan 14:00 á morgun. Undirbúningur hefst klukkutíma fyrr með skiltagerð og andlitsmálun. Gangan tekur um hálftíma og að henni lokinni tekur við útidagskrá, áþekk þeirri sem er í Sláturhúsinu í dag. Regnbogadiskó er síðan í Herðubreið eftir hana og karíókí um kvöldið á Kaffi Láru.

Á sunnudag er síðan uppistand með Sindra „Sparkle“ Frey á Tehúsinu klukkan 17:00 og tónleikar með Sigurði Guðmundssyni í Végarði í Fljótsdal klukkan 20:00.

Fyrr um daginn, eða klukkan 14:00, verður vígsluathöfn nýs þjónustuhúss við Hengifoss.

Hanna Christel Sigurkarlsdóttir verður með listsýninguna „Fjallahringir“ í Steinholti á Seyðisfirði í ágúst. Þar sýnir hún myndir sem hún hefur tekið á Seyðisfirði og unnið með. Hanna Christel segir frá verkunum klukkan 17:00 í dag.

Á Seyðisfirði verður líka í kvöld klukkan 22:00 árleg kertafleyting í þágu friðar. Kertunum verður fleytt á tjörninn við miðbæjartorgið.

Hafnfirska stuðsveitin Dan van Dango heldur tónleika á Tehúsinu annað kvöld klukkan 21:00.

Árleg skógargleði verður haldin í Vallanesi frá klukkan 13-17 á sunudag. Þar verða listamenn, smáframleiðendur með sölu og skógarmenn leiðbeina við tálgun.

FHL á heimaleik gegn ÍBV í Lengjudeild kvenna í Fjarðabyggðarhöllinni klukkan 12:30 í á morgun. Með sigri verður úrvalsdeildarsæti FHL svo gott sem gulltryggt. KFA á síðan leik gegn Fjallabyggð í annarri deild karla strax í kjölfarið eða klukkan 16:00

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.