Rafmagnslaust á Breiðdalsvík
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 15. des 2014 16:37 • Uppfært 15. des 2014 16:41
Rafmagnslaust hefur verið í Breiðdal og Breiðdalsvík frá því um klukkan hálf þrjú í dag. Bilun er í aðveitustöð við Ormsstaði í Breiðdal.
Samkvæmt upplýsingum frá RARIK eru viðgerðarmenn komnir á staðinn og eru að leita að biluninni.
Rafmagnslaust hefur verið í Njarðvík frá því í gærkvöldi. Aftakaveður er á þeim slóðum og ekki verið hægt að senda viðgerðarflokk.