Breiðdalur án rafmagns í sólarhring: Ríkir hálfgert neyðarástand

bdalsvik hh1Rafmagnslaust hefur verið í Breiðdal síðan klukkan tvö í gær og ekki er útlit fyrir að rafmagn komist á fyrr en um hádegi. Kalt er orðið í íbúðarhúsum þar sem treyst er alfarið á rafmagnskyndingu.

„Við eru óhress því við erum eiginlega bjargarlaus," segir Hákon Hansson, oddviti Breiðdalshrepps.

Aðalspennir við Ormsstaði í Breiðdal gaf sig í gær sem þýðir að rafmagnslaust er suður á Berufjarðarströnd.

Spennirinn vegur 15 tonn og kemur með bíl úr Reykjavík. Von er á honum í Breiðdalinn upp úr klukkan 10 og eftir það tekur 2-3 tíma að tengja hann. Starfsmenn RARIK á Austurlandi hafa í morgun unnið að því að fjarlægja þann gamla.

Það alvarlegasta við rafmagnsleysið er að íbúar á svæðinu treysta alfarið á rafmagnskyndingu. Víða er því farið að kólna í húsum. „Hitastigið í húsinu hjá mér er komið niður í 10,9 gráður og það verður ótrúlega fljótt kalt í húsunum.

Það ríkir hálfgert neyðarástand hér. Það var mikill vindur hér fram á nótt og nú er fimm stiga frost.

Við höfum miklar áhyggjur af eldra fólki og höfum skipulagt aðstoð við það. Við vitum að einhverjir fóru yfir á Stöðvarfjörð og gistu þar því við bentum sérstaklega fólki með lítil börn á gistiheimilið þar.

Aðrir hafa dúðað sig niður í rúmin. Ástandið er eflaust ekki gott í sveitinni, að minnsta kosti ekki á kúabúunum."

Breiðdælingar eru heldur ekki hressir við viðbrögð RARIK því vararafstöð sem var í þorpinu er ekki lengur til staðar. „Okkur finnst einkennilegt að ekkert varaafl sé til á Austurlandi.

Maður hélt að svona gæti ekki gerst lengur, að það væru til aðrar neyðaráætlanir en að senda varahluti úr Reykjavík."

Hákon gagnrýnir ennfremur skort á upplýsingum frá RARIK. Breiðdælingar hafi hringt eftir þeim en fátt verið um svör. Ekki eru heldur neinar upplýsingar á vef veitnanna né hefur fjölmiðlum verið sendar tilkynningar um ástandið.

Þá var óskað eftir því að almannavarnir sendu SMS á síma á svæðinu, líkt og gert er í kringum eldgosið í Holuhrauni, en ekki var orðið við því. Flestir heimasímar á svæðinu virka ekki, aðeins gemsar og gamaldags heimasímar.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.