Skip to main content

Austfirðingar fastir í borginni: Það fær enginn neinar jólagjafir frá mér nema ég komist heim

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 16. des 2014 17:22Uppfært 16. des 2014 17:25

dagmar yr april14Flugsamgöngur á milli Egilsstaða og Reykjavíkur hafa farið úr skorðum vegna óveðurs til skiptis í landshlutunum síðustu daga. Þó nokkrir Austfirðingar eru enn tepptir syðra.


„Maður stjórnar ekki veðrinu en ég hef fulla trú á að við komumst heim á morgun," segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Fjarðaáls, en hún er meðal hinna veðurtepptu.

Dagmar var að koma erlendis frá og átti upphaflega bókað austur á sunnudag. Fréttir gáfu þó strax vísbendingu um þá raun að hvorki yrði flogið á sunnudag né mánudag.

Tvær vélar komust á milli í morgun áður en leiðin lokaðist aftur vegna óveðurs syðra. „Ég var svolítið fúl að komast ekki með í morgun. Ég komst að því rétt áður en vélin fór að það væri eitt sæti laust en umferðin var mikil og ég náði ekki á völlinn í tæka tíð."

Nokkrir Austfirðingar komust suður og sitja því fastir þar í staðinn. Þeirra á meðal voru Sigrún Blöndal og Björg Björnsdóttir sem fara fyrir Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi.

„Ég var að grínast við þær að við gætum haldið jólin saman á hótelherbergi í borginni," segir Dagmar.

Hún á samt ekki von á að til þess komi. „Ég er búin að vera í meira en viku frá fjölskyldunni og er tilbúin að komast austur. Ég er líka með allar jólagjafir fjölskyldunnar og því fær enginn neitt frá mér nema ég komist heim."