Skip to main content

Rannsóknaverkefni um vistkerfi sjávar styrkt

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 23. feb 2023 11:00Uppfært 23. feb 2023 14:46

Birtingarmyndir loftslagsbreytinga, samstarfsverkefni Náttúrustofu Austurlands, Náttúrustofu Vestfjarða og ráðgjafafyrirtækisins Rorum hlaut nýverið styrk úr Loftslagssjóði. Þar er fylgst með áhrifum fiskeldis á vistkerfi á sjávarbotni.


Markmið verkefnisins er að gera vefsíðu sem sýnir samfélög hryggleysingja á hafsbotni á ákveðnum stað á mismunandi mína. Hún er komin í loftið á slóðinni www.fjolbreytt.is.

„Aukning koltvísýrings í andrúmslofti hefur margvíslegar breytingar í för með sér sem einu nafni eru nefndar loftslagsbreytingar. Meðal þeirra breytinga sem verða er að sjórinn hitnar og súrnar, þ.e. sýrustig sjávar lækkar.

Náttúrlegar sveiflur eru miklar í vistkerfum sjávar, en með loftlagsbreytingum má búast við varanlegum breytingum.

Á sjávarbotni eru fjölbreytt samfélög hryggleysingja, sem er hægt að skilgreina með tegundum dýra í hverju samfélagi og hlutfallslegum fjölda einstaklinga. Þessi samfélög hryggleysingja eru stöðugt að breytast, dýrategundum fækkar eða fjölgar á víxl,“ segir í tilkynningu.

Sérstaklega er horft til svæða þar sem fiskeldi er stundað. Í verkefninu eru í fyrsta lagi notuð gögn frá því fyrir eldi, í öðru lagi 200 metra fjarlægð eða meira frá eldi sem fengið hefur nokkurra mánaða hvíld og í þriðja lagi í 1000 metra fjarlægð frá næsta eldissvæði.

Bitar eru myndir af samfélögunum frá mismunandi árum og þannig hægt að sjá hvernig þau breytast milli ára. Jafnframt er sýndur meðalfjöldi einstaklinga einstakra tegunda á hverjum tíma og þannig má sjá hvernig fjöldi einstaklinga viðkomandi tegundar breytist frá ári til árs.

„Með því að skoða samfélög botndýra frá ári til árs og fjölda einstaklinga einstakra dýrategunda, má sjá hvort breytingar virðast tilviljunarkenndar eða hvort um leitni sé að ræða. Breytingar geta orðið á ákveðnum þáttum samfélaga eins og tegundasamsetningu eða fjölda eða hlutfallsegum fjölda einstaklinga einstakra tegunda.

Verða varanlegar breytingar á botndýrasamfélögunum, þannig að t.d. ákveðnar tegundir hverfi, eða að aðrar tegundir komi til að vera, eru þær breytingar líklega vegna breytinga á umhverfisþáttum í sjónum sem hugsanlega má rekja til loftslagsbreytinga (hærri hiti og lægra sýrustig í sjónum).

Það þarf þó að taka það fram að þau gögn sem sýnd eru á síðunni segja ekki um það hvort breytingar á tegundasamsetningu og fjölda botndýra séu rakin til loftslagsbreytinga,“ segir í tilkynningunni.

Mynd: Fiskeldi Austfjarða