Hóta að aflífa hreindýrskálfinn

Umhverfisstofnun hefur hótað að aflífa hreindýrskálfinn Líf sæki uppalendur hans á Sléttu í Reyðarfirði ekki um leyfi umhverfisráðherra til að halda honum.

 

ImageKálfinum var bjargað af slökkviliðsmönnum í Reyðarfirði, sem fundu hann nýfæddan og móðurlausan, skammt frá álverinu. Þeir fóru með kálfinn í Sléttu þar sem hann hefur dvalið í góðu yfirlæti síðan. Í Svæðisfréttum var haft eftir Dagbjörtu Briem Gísladóttur, bónda á Sléttu, að heimilisfólkinu hefði brugðið við að fá bréfið.
Í því er bent á að samkvæmt lögum um dýravernd þarf leyfi umhverfisráðherra til að handsama villt dýr fyrir dýragarða eða önnur söfn. Þá segir einnig að hægt sé að fá undanþágu ef nota eigi dýrið við rannsóknir eða til ræktunar.
Dagbjört segir ekkert af þessu eiga við Líf. Hún segist hafa skilning á málinu en stofnunin hefði getað farið öðruvísi að.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.